Öðruvísi húðflúrstofa ætlar að flúra fólk með sjálfsofnæmi án endurgjalds

Emilia Dungal vinnur að hópfjármögnun í gegnum Karolina Fund til að opna húðflúrstofu. Hún ætlar að flúra fólk með sjálfsofnæmissjúkdóma án endurgjalds og gefa þeim sem vilja hylja erfið gömul húðflúr góðan afslátt.

karolina fund emilia
Auglýsing

Húð­flúr­lista­mað­ur­inn Emilia Dungal hefur ástríðu fyrir að hjálpa öðr­um. Verk­efni hennar snýst um að með réttum húð­flúrum sé hægt að breyta lífi fólks. Hún hylur húð­flúr sem vísa í  kyn­þátta­hatur og glæp­sam­lega for­tíð og eins ef fólk hefur sjálf­næm­is­sjúk­dóma líkt og skjall­bletti (e. Vitiligo) þá getur hún fyllt upp í með lit þar sem hann vant­ar. Þetta vill hún gera án end­ur­gjalds. 

Þegar um er að ræða erfið gömul húð­flúr og ör sem hægt er að flúra yfir, vill hún gefa fólki góðan afslátt.

Hver er bak­grunnur þinn?

Húðflúr eftir Emiliu.„Ég fædd­ist á Íslandi og var alin upp á Spáni, yngst fimm systk­ina. Ég byrj­aði að húð­flúra á unga aldri. Það var árið 2009 og þá var ég 17 ára. Það var ekki auð­velt að taka ákvörðun um að húð­flúrun væri mín fram­tíð, þar sem ég vissi ekki mikið um list­ina og var því mjög óákveð­in. Eftir að hafa unnið á vinnu­stofum og heima, lærði ég smám saman aðferð­ina við húð­flúrun. Eins skipti miklu máli hand­leiðsla sam­starfs­manna minna. Í gegnum tíð­ina hafa aðferðir mínar við húð­flúrun og teikn­ing­arnar breyst og þró­ast.  Ég hef ekki ein­angrað mig við ein­hvern einn stíl, heldur finnst mér gaman að vinna allt frá raun­sæi yfir í gamla skól­ann.“

Hvaðan kom áhugi þinn á húð­flúrun?

„Ég hann­aði mitt fyrsta húð­flúr þegar ég var 16 ára og mán­uði seinna byrj­aði vin­kona mín að flúra. Ég fann strax fyrir ákveð­inni hrifn­ingu af því hvernig vin­kona mín gerði sín eigin flúr og eftir smá umhugsun þá ákvað ég að gefa mér minn fyrsta húð­flúr­un­ar­búnað í 17 ára afmæl­is­gjöf og hefja mitt eig­ið húð­flúr­un­ar­ferða­lag. Ári síðar kláraði ég diplómu í húð­flúrun og hef verið að vinna í geir­anum síðan á nokkrum mis­mun­andi húð­flúr­un­ar­stofum, bæði á Spáni og á Íslandi. Núna bý ég á Íslandi og er að vinna að hóp­fjár­mögn­un­ar­verk­efni í gegn­um Karol­ina Fund til að opna öðru­vísi húð­flúr­stofu í Reykja­vík. Verk­efnið verður opið fyrir áheitum til 5. júlí.“

Auglýsing

Á hvaða hátt eru húð­flúrin þín öðru­vísi?

„Ég mun nota 30% af tekjum af hefð­bundnum húð­flúrum til að greiða kostnað við að flúra fólk með skjall­bletti og bjóða 30% afslátt til fólks sem vill hylja ör eða slæm húð­flúr til dæm­is. Ég vil gera þetta til að aðstoða fólk í neyð og hjálpa því að breyta lífi sín­u.“

Verk­efnið er að finna hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk