Áshildur Hlín Valtýsdóttir og Sólveig Helgadóttir eru ACC markþjálfar sem eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á sjálfsvinnu með ungu fólki, sér í lagi með styrkleikaskoðun. Þær hafa báðar umtalsverða reynslu af markþjálfun með þessum hóp og hafa nú gefið út ný styrkleikaspil til að nýta í einstaklingsmarkþjálfun, hópavinnu og í raun hvers kyns vinnu með styrkleika. Þær stöllur hafa sett upp Facebook síðu utan um verkefnið, en safnað er fyrir útgáfukostnaði á Karolina Fund.
Kjarninn hitti Áshildi og Sólveigu og tók þær tali.
Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?
„Fyrir nokkrum árum, þegar við vorum að byrja að markþjálfa, vorum við með styrkleikaspil sem okkur fannst svo sniðug og góð til að nýta í samtölum en gallinn var að þau voru á ensku. Spilin voru litrík, með flottum myndum og við notuðum þau oft ásamt öðrum spjöldum sem voru bara með orðum, en engum myndum. Við tókum auðvitað strax eftir því að marksækjendur okkar vildu helst hafa spilin á íslensku og með myndum, þar sem myndir tala oft meira máli en orð. Við fórum að kasta á milli okkar hugmyndum, skoða fleiri stokka og bera saman, s.s. VIA styrkleika úr jákvæðu sálfræðinni og fleira. Í millitíðinni frá því við settum upp fyrsta Excel skjalið og byrjuðum að ræða þessi mál hafa íslensk styrkleikaspil verið gefin út.
Segðu okkur frá þema verkefnisins?
„Þemað er ungt fólk og styrkleikar. Við viljum sjá líflega og jákvæða umræðu um styrkleika á meðal ungs fólks. Okkar draumur er að ungt fólk í dag vaxi úr grasi með sterka og meðvitaða sjálfsþekkingu og geti átt eðlilegt samtal um eigið ágæti án þess að virka sjálfhverft í hugsun. Við viljum búa í samfélagi þar sem styrkleikar eru ræddir og meðteknir. Vinna með spilin eykur sjálfsvitund, sem skilar sér í meira sjálfstrausti og betri líðan þegar upp er staðið.
Allir styrkleikar eru mikilvægir - og þetta má undirstrika og feitletra! - og við teljum að eina leiðin
til að samfélög sannarlega blómstri sé með því að fagna og ýta undir að við ræktum þessa
eiginleika sem eru hverju og einu okkar svo mikilvægir.“
„Okkur langar að koma á framfæri einlægu þakklæti til þeirra sem sýnt hafa þessu
verkefni áhuga og stuðning. Frekari upplýsingar má nálgast á Instagram undir #styrkleikaspil og
á Facebook síðu verkefnisins: Vertu sjálffræðingur styrkleikaspil, en þar munu á næstu vikum
safnast inn æfingar í hugmyndabanka spilanna.“