Galdur – Nýr íslenskur söngleikur settur upp í vor

Söngleikurinn Galdur gerist á Íslandi seint á 17. öld, á erfiðum tímum í íslensku samfélagi. Öfund, illska og fáfræði eru aflvakar atburðarásar þar sem ung stúlka er sökuð um galdra og dæmd á bálið.

vlcsnap-2019-12-17-10h20m12s702.png
Auglýsing

Helgi Þór Inga­son höf­undur og Hilmar Örn Agn­ars­son org­anisti og kór­stjóri Söng­fé­lags­ins

hafa tekið höndum saman og ætla að setja söng­leik­inn Galdur upp vorið 2020. Helgi Þór er

unn­andi söng­leikja og aðspurður telur hann að hug­myndin um að setja saman söng­leik hafi

kviknað eftir að hann sá Ves­al­ing­ana í Þjóð­leik­hús­inu vorið 1988.

Fyrstu lögin í Galdri urðu til nokkrum árum seinna og sögu­þráð­ur­inn byrj­aði að mót­ast í kringum alda­mót­in. „Söng­leikir snú­ast oft um ein­falda fléttu og átökin milli góðs og ills" segir Helgi Þór. „Þessi saga snýst öðrum þræði um það hve fljót við erum oft að hrapa að álykt­unum og dæma. Stundum verður ein­hvers­konar múgæs­ing í sam­fé­lag­inu og dóm­stóll göt­unnar getur verið býsna

grimmur".

Auglýsing
Sagan ger­ist á síð­asta hluta 17. aldar og fléttan snýst að sögn Helga Þórs um að

stjórn­völd á þeim tíma vildu gjarnan að athygli lýðs­ins beind­ist ekki að erf­iðum kjörum

almúg­ans - og höfð­ingj­unum sem höfðu það gott á meðan alþýðan svalt - heldur að öðrum

óvin­i. Sum sé and­skot­an­um ­sjálfum sem tæki sér ból­festu í fólki og að eina ráðið í

bar­átt­unni við and­skot­ann væri að ráð­ast gegn hon­um, og senda hand­bendi hans á bál­ið.

Söng­fjelag­ið er kór undir stjórn Hilm­ars Arnar Agn­ars­son­ar. „Við erum 60 manna bland­aður

kór og okkur finnst gaman að stíga út fyrir þæg­ind­ara­mmann og taka þátt í óhefð­bundnum

verk­efn­um," segir Hilmar Örn.Galdur, söngleikur

Galdur verður einmitt vor­verk­efn­i ­Söng­fjelags­ins og verk­ið verður sett upp sem leik­lest­ur, með meg­in­á­herslu á flutn­ing tón­list­ar­inn­ar. Ýmsir fleiri mun­u ­taka þátt í þess­ari upp­færslu, meðal ann­arra þjóð­laga­hljóm­sveitin Kólga. Mik­il­vægur áfang­i ­náð­ist fyrir skemmstu þegar lett­neski útsetj­ar­inn Vikt­or­s ­Ritovs lauk við kórút­setn­ingar á tíu lögum í verk­inu.

Nú er búið að hleypa af stokk­unum hóp­fjár­mögn­unar­átaki á Karolina­fund til að fjár­magna upp­setn­ing­una, sem er umfangs­mikið verk­efni. Þeir sem styrkja fram­takið geta ­fengið allt frá miðum á sýn­ingu upp í kvöld­stund við flygil­inn á heim­ili höf­und­ar­ins, þar sem hann útskýrir hug­mynd­ina á bak­við verkið og leikur nokkur lög.

Þeir Hilmar Örn og Helgi Þór hlakka til kom­andi mán­aða í svið­setn­ingu og æfingum á Galdri. „Við ætlum að magna galdra­seið í vor," segja þeir félag­ar.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk