Jóhanna Seljan gefur út Seljan

Lítið þekkt tónlistarkona á fertugasta og öðru aldursári safnar fyrir útgáfu fyrstu plötu sinnar með eigin efni á Karolina Fund.

seljanmynd.jpg
Auglýsing

Jóhanna Seljan Þór­odds­dóttir sat með kaffi­bolla við eld­hús­borðið á heim­ili sínu á Reyð­ar­firði að morg­un­lag­i snemma árs í fyrra og spurði sjálfa sig nokk­urra hrein­skil­inna spurn­inga. Á lítið þekkt tón­list­ar­kona á fer­tug­asta og öðru ald­ursári að ráð­ast í að gefa út plötu með sínu eigin efni? Hefur téð kona eitt­hvað sér­stakt fram að færa? Þorir hún að taka þennan slag? Á meðan kaffið kóln­aði í boll­anum var spurn­ing­unum svarað ját­andi og ákvörð­unin tek­in. Árið 2020 skyldi koma út plata og Jóhanna valdi að safna fé til útgáf­unnar á Karol­ina Fund.  

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að plöt­unni?

„Hug­myndin kvikn­aði fyrst árið 2007. Þá hafði ég verið að semja texta árum saman og var farin að semja lög líka. Full af eld­móði hljóð­rit­aði ég ­töku­lag ­með eigin texta í jan­úar 2008. Ég var stað­ráðin í að halda áfram að taka upp og gefa út plötu en líf mitt tók miklum stakka­skiptum þetta ár og næstu árin sem á eftir fylgd­u. 

Auglýsing
Ég var þó alltaf á kafi í tón­list, dug­leg að koma fram og hélt áfram að semja. Árið 2016 fór ég að finna fyrir gríð­ar­lega mik­illi þrá til að koma efn­inu mínu frá mér og sú til­finn­ing ágerð­ist þar til ég tók ákvörðun um að mín fyrsta sóló­plata, Selj­an, kæmi út árið 2020.“

Segðu okkur frá þema plöt­unn­ar?

„Text­arnir á Seljan fjalla um mann­lega hegðun og til­finn­ingar á borð við ein­mana­leik­ann, ást­ina, eft­ir­sjá og þá stað­reynd að við erum öll bara mann­leg, með þeim kostum og göllum sem því fylg­ir. Lögin sjálf eru frekar fjöl­breytt og á plöt­unni er hægt að finna bræð­ing af blús, djass og rokki.“

Hvernig hefur und­ir­bún­ings­ferlið ­geng­ið?

„Það hefur verið bæði skemmti­legt og krefj­andi. Að semja texta og koma honum niður á blað er eitt­hvað sem er mér frekar eðl­is­lægt. En það sama á ekki við um lögin þar sem ég spila ekki á hljóð­færi og les illa nót­ur. Ég þarf því að hafa mikið fyrir að koma lög­unum úr koll­inum á mér og yfir á það form sem hljóð­færa­leik­arar geta les­ið. Ég er afar lánsöm að þekkja dásam­legt fólk sem hefur gott tón­eyra og mikla þol­in­mæði sem kemur sér vel þegar ég reyni að útskýra hljómana sem mig langar til að nota án þess að geta sagt hvað þeir heita. Þessi tak­mörkun mín styrkir bara sjálfs­bjarg­ar­hvöt­ina og gerir mig enn­þá ein­beitt­ari í að semja lög. Stærsta hindr­unin sem ég þurfti að takast á við var hræðsla mín við að vera ber­skjöld­uð. Það er eitt að standa uppi á sviði og syngja ann­ara manna lög, allt annar hand­leggur að syngja eigið efni þegar maður er al­send­is ó­vanur því. En ég elska að syngja, koma fram og skapa og sú löngun og þrá er marg­falt sterk­ari en allur ótti. Ég hlakka ólýs­an­lega mikið til þegar platan kemur út í haust, þá má líka segja að rúm­lega 12 ára ferli sé lokið og stórum áfanga náð.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efn­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk