Lífið á tímum kórónuveirunnar: Í rauninni býr svo mikið skjól í manni sjálfum

Auður Jónsdóttir rithöfundur hvílir sig á rekaviðardrumbi eftir kvöldsund í Krossneslaug á Ströndum.
Auður Jónsdóttir rithöfundur hvílir sig á rekaviðardrumbi eftir kvöldsund í Krossneslaug á Ströndum.
Auglýsing

Það er skot­helt ráð að hlusta á tón­list til að næra sál­ina, segir Auður Jóns­dóttir rit­höf­und­ur. Að skapa, sem getur verið allt frá því að búa til mat, teikna mynd eða skrifa sögu, kveikir flæði hið innra sem aftur veitir ham­ingju­til­finn­ing­u. „Á með­an hug­ur­inn skapar gleymir maður sjálfum sér og umheim­inum og verður þess í stað ­fullur af ein­beit­ingu, sköp­un­ar­gleði og orku.“

Auður er í hópi val­in­kunnra Íslend­inga sem rit­stjórn Kjarn­ans bað um að veita les­end­um ­góð ráð um hvernig hægt er að rækta lík­ama og sál á tímum kór­ónu­veirunn­ar. 

Fimm ráð Auðar fara hér að neð­an.

Auglýsing

Góður göngutúr

Ráð númer eitt, sem mér finnst allra mik­il­vægast, er að fara í góðan göngutúr. Helst tvo á dag, ef maður kemur því við. Bara það að ganga opn­ar vit­und­ina, fyllir brjóstið af kjarki og súr­efni, svo ekki sé minnst á allt D-vítamínið þegar sólin skín, og heim­ur­inn stækkar úr því að vera tölvu­skjár ­fullur af ham­fara­f­réttum yfir í enda­lausa sjón­deild.

Ef ég finn fyrir dep­urð eða streitu bregst ekki að göngut­úr kippir því í lag. Ef maður býr í Reykja­vík er til dæmis gott að rölta Skerja­fjörð­inn og Ægis­síð­una og/eða út í Gróttu. Svo skilst mér að göngut­úr­ar ­séu góðir fyrir ónæm­is­kerf­ið. Og súr­efn­is­mett­unin er kröft­ugri í úti­lofti en inni.

Hlusta á tón­list

Ráð númer 2 er að hlusta á tón­list. Tón­list getur haft ­svipuð áhrif á okkur og nánd, hún seður til­finn­ingar og veitir svör­un. Svo ef ­maður þarf að hanga mikið einn, í sótt­kví eða bara því svo lítið er um að ver­a, þá er skot­helt að hlusta á tón­list. Helst alls­konar tón­list til að fá svörun við alls­konar til­finn­ingum og leyfa hug­anum að flæða.

Stunda sköpun

Ráð númer þrjú er að stunda ein­hvers konar sköp­un. List­sköpun getur falist í því að búa til mat, rétt eins og að teikna mynd, búa til víd­eó, glamra á gítar eða skrifa sögu. Sköpun getur líka verið að sauma út, halda dag­bók, leira eða föndra, svo margt. Gjörn­ing­ur­inn að búa eitt­hvað til er ­sköp­un. En við að skapa eitt­hvað kviknar flæði innra með manni og flæðið veit­ir ham­ingju­til­finn­ing­u. 

Á meðan hug­ur­inn skapar gleymir maður sjálfum sér og um­heim­inum og verður þess í stað fullur af ein­beit­ingu, sköp­un­ar­gleði og orku – um leið og sköp­unin er far­vegur til að tjá alls­konar til­finn­ingar sem bær­ast inn­ra ­með manni, hvort sem maður tjáir þær beint eða óbeint, en ein­beit­ingin veitir hug­arró. Sköpun tendrar góð boð­efni.

Hug­leiðsla

Ráð fjögur er hug­leiðsla. Hvort sem sólin skín úti eða ekki, þá getur maður alltaf fundið sól innra með sér. Í raun­inni býr svo mikið skjól í manni sjálfum ef hug­ur­inn fær hvíld frá ert­andi hugs­unum og vit­undin leyf­i til að hvíla í sjálfri sér. Á net­inu má finna ótelj­andi hug­leiðsl­ur, þar geta allir fundið eitt­hvað við sitt hæfi. Eins er gott að gera jóga­æf­ingar og hug­leiða síð­an. Nú fer að vora og þá er æðis­legt að gera jóga úti og hug­leiða í vor­gol­unni.

Að dansa 

Ráð fimm er skot­helt og gæti líka verið fyrsta ráð­ið. Það er að dansa heima hjá sér. Blasta tón­list og bara dansa. Í dansi tjáir sjálfið sig í gegnum lík­amann og það fær útrás. Bara það að setja góða tón­list á og dansa ­getur umbreytt þreytu í orku. Ef ég er þreytt og finnst ég vera buguð af verk­efnum og áreiti getur dans í tutt­ugu mín­útur umbreytt líð­an­ina í atorku og ­gleði. Dans tendrar líka góð boð­efni og styrkir and­lega og lík­am­lega vellíð­an.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk