Einlæg lög frá óttalegum rokkara

Tónlistarkona sem hefur gefið út plötur með hljómsveit sinni, meðal annars í Kína, safnar nú fyrir sólóplötu á Karolína fund.

Auglýsing
elín karolina

Elín Berg­ljót­ar­dóttir hefur verið árum saman í Hljóm­sveit­inn­i Bell­stop og hefur gefið út þrjár breið­skífur með þeirri hljóm­sveit þar á meðal eina í Kína en Elín var búsett þar í sex ár. 

Nú vinnur Elín að sóló­plötu í Reykja­vík sem er á íslensku og kemur út á íslandi með haustin­u. 

Elín hefur verið að syngja og semja texta frá unga aldri . Guð­mundur Jóns­son gít­ar­leik­ari og laga­höf­undur kemur að laga­smíðum á nýju ­sóló­plöt­unni hennar Elín­ar. 

Þetta verður ein­hvers­konar blanda af rokk­skot­inni fólk tón­list með hell­ing af hjarta og sál. 

Segðu okkur frá verk­efn­inu þínu?

„Mig hefur langað til að gera plötu á íslensku í nokkur ár og hef verið að skrifa niður texta og ljóð bara svona fyrir mig að eiga þegar tím­inn kæmi. Svo seint á árinu 2019 þá skildi ég við mann sem ég hef verið með í 24 ár. Þegar svona mikið rót verður á lífi manns þá þarf maður að hafa ein­hvers­konar tján­ing­ar­form og mitt helsta tján­ing­ar­form eru textar og tón­list svo ég bara elti það alla leið og úr urðu lög sem ég er enn að leggja loka­hönd á en það gengur mjög vel að koma þeim á legg enda á nægu efni að taka. 

Auglýsing
Þema verk­efn­is­ins er klár­lega hjartað í mér. Þessi lög eru mjög ein­læg án þess þó að vera eitt­hvað sér­stak­lega væmin enda er ég ótta­leg­ur rokk­ari í mér en fila samt að tala um og yrkja um hlut­ina eins og þeir eru því ann­ars lærir eng­inn neitt að því sem maður er að segja og upp­lifa ef maður getur ekki verið ekta. Svo þessi plata verður alla­veg­ana ekta ég get lofað því. 

Svo er ­nátt­úr­lega mjög magnað að vera að vinna að svona verk­efni um þetta mál­efni og þá blossar upp heims­far­aldur og fólk fer að forð­ast að vera nálægt hvort öðru akkúrat þegar maður þarf sem mest á því að halda að fá knús og félags­skap en ég set þær til­finn­ingar þá bara líka í list­ina hún er eins og vasa­klútur sem þerrar öll mín tár og hjálpar mér að finna leið­ina áfram og standa með sjálfri mér.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk