Teiknarinn og málarinn Tryggvi Magnússon

Andrés Úlfur Helguson safnar nú fyrir bók um lífshlaup og list Tryggva Magnússonar.

Teiknarinn og málarinn Tryggvi Magnússon
Auglýsing

Tryggvi er einn af þeim lista­mönnum sem hefur gleymst í tím­anna rás. Hann átti stóran þátt í því að gera sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslend­inga mynd­ræna en hann var helsti hönn­uður Alþing­is­há­tíðar 1930. Tryggvi teikn­aði skjald­ar­merki Íslands og var fyrsti atvinnu­teikn­ar­inn og braut­ryðj­andi í aug­lýs­inga­teiknun á Íslandi. Andrés Úlfur Helgu­son safnar nú fyrir bók um lífs­hlaup og list Tryggva Magn­ús­sonar á Karol­ina Fund

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Það má segja að hug­myndin að útgáfu á ævi­sögu um langafa minn hafi ekki orðið að veru­leika fyrr enn að amma mín Þór­dís Tryggva­dóttir ákvað að láta hið gríð­ar­mikla mynda­safn Tryggva af hendi til varð­veislu til fram­búð­ar. Eftir mikla vinnu í sam­starfi með Lands­bóka­safn Íslands og fleiri listaunn­end­ur, sér­fræð­inga og fjöl­skyldu var ekk­ert annað í stöð­unni enn að koma þessu verk­efni á kopp­inn. 

Auglýsing


Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Skjaldarmerki ÍslandsÍ Ævi­sög­unni um Tryggva Magn­ús­­son verður líf hans og fer­ill rak­inn í máli og myndum þar sem stuðst verður við áður óbirt safn hans sem og áður útgefið efni. Þessi frum­­gögn, sem í fyrsta skipti fá að líta dags­ins ljós, gegna því veiga­­miklu hlut­verki í allri umfjöllun og inn­­­sýn í líf mál­­ar­ans og eru þunga­vigtin í kom­andi skrifum um ævi og starfs­­feril lista­­manns­ins. Þetta voru miklir umbrota­­tímar í íslensku þjóð­­lífi. Þar fór mest fyrir sjálf­­stæð­is­bar­áttu land­ans, sjálfsí­­mynda­­sköpun nýfull­­valda þjóðar og hvernig Íslend­ingar álítu sig menn­ing­­ar­­lega frá­­brugðna öðrum, sem þjóð með sam­eig­in­­legan upp­­runa og sög­u­­lega for­­tíð. 

Tryggvi var braut­ryðj­andi í graf­ískri hönnun og gríð­­ar­­lega afkasta­­mik­ill lista­­maður og var hann feng­inn í að teikna allt sem fólki dátt í hug á þessum tíma. Hann mynd­skreytti tugi barna- og ævin­týra­­bóka. Hann var rit­­stjóri og aðal teikn­­ari skopá­­deilu­­blaðs­ins Speg­ils­ins í yfir tutt­ugu ár. Hann var einn af þeim merku lista­­mönnum sem tók þátt í að hanna og mynd­skreyta allt fyrir Alþing­is­há­­tíð­ina 1930. Hann teikn­aði jóla­­svein­ana með ljóðum Jóhann­esar úr Kötl­­um. Tryggvi var fyrsti aug­lýs­inga­teikn­­ari Raf­­skinnu árin 1935-1945 og árið 1944 var teikn­ing hans af land­vætt­unum við­­ur­­kennd sem opin­bert skjald­­ar­­merki lýð­veldis Íslands. Þessi upp­­taln­ing er alls ekki tæm­andi og verður það tals­verð áskorun að koma því öllu fyrir í einni bók. Ef það er ein­hver þarna úti sem býr yfir ein­hverjum fróð­­leik um Tryggva og vill deila honum með höf­und er bent að net­fangið skjald­­ar­­merk­ið@g­mail.com



Hér er hægt að skoða og taka þátt í útgáf­unni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk