Óli Schram er afi níu barnabarna og saknar þess að hafa ekki getað umgengist þessi kríli þegar hann vill. Og þau veigra sér við heimsóknir sjálf, enginn vill vera valdur af smiti. Þó barnið sé á unga aldri og hafi ekki hugmynd um hvað sé í gangi vex forvitni þess með aldrinum og áhuginn kemur. Þá gæti gamla fólkið verið gengið og til lítils að ætlast.
Hefur Óli því brugðið á það ráð að búa til bók sem kallast Barnabarnabókin því hún endar í eigu barnabarnsins. Bókin er ætluð sem gjöf frá foreldri eða barninu sjálfu til ömmu eða afa. Þau fylla út og skýra út og barnið veit meira um þau. Óli safnar nú fyrir útgáfu á Karolina Fund.
Í lýsingu á bókinni kemur fram að hún lýsi og tiltaki atvik í ævi gamla fólksins sem verði því meiri gersemar sem árin líða svo ekki sé talað um fráföll ömmu og afa. Bókin inniheldur um 140 spurningar og með auðu plássi þar undir fyrir svörin auk síðum fyrir myndir af viðkomandi. Bókin er sögð upplögð samtenging á COVID-tímum, þeim öldnu til upprifjunar og barni til ununar.
Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?
„Hugmyndin kom til mín þegar ég fékk svona (útlenska) bók í hendurnar sjálfur. Ég hafði afskaplega gaman af því að rifja upp, muna og leita svara við útfyllingu. Þær stundir tókum mig á tímaflakk svo um munaði, aftur í barnæsku, í gegnum Bítlatímabilið, útvarpsfrjálsræði, ferða tækifærin og þegar síminn kom.
Pabbi minn sálugi, fæddur 1912 svaraði spurningunni um hvað hefði verið mesta framfaraspor í hans huga þegar hann liti aftur til þróunar eða tæknibyltingar. Hann sagði: „Þegar gúmmískórnir komu.“ Ég geri fastlega ráð fyrir því að enginn nema þeir sem fæddir eru í kringum síðustu aldamót skilji þetta svar hans.“
Óli vildi í COVID-einangrun að unnt væri að nálgast börnin eða öllu heldur að fá barnabörnin til að nálgast gamla fólkið.
„Með útfyllingu, sem er ákaflega skemmtilegt verkefni, öðlast barnið meiri innsýn í líf þeirra öldruðu. Hver vildi ekki eiga svona bækur frá ömmum sínum og öfum? Besta vitnið um gljúfrið milli kynslóða er þessi saklausa spurning 6 ára stúlku til mömmu sinnar: „Var amma einu sinni 6 ára?“.“