Edda Falak er 29 ára íþróttakona, sem heldur uppi hlaðvarpinu Eigin konur. Hún hefur varið miklum tíma síðastliðin ár í að valdefla konur í gegnum Instagram og hlaðvarpið sitt. Edda hefur fengið 40 íslenskar konur til þess að taka þátt í verkefninu með sér.
Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?
„Hugmyndin af bókinni fékk ég út frá umræðu sem ég setti af stað á Instagram. Þar deildi ég skoðun minni á af hverju konur gætu ekki birt af sér kynþokkafulla mynd án þess að vera kallaðar athyglissjúkar druslur. Yfir fimm hundruð manns birtu myndir af sér fáklæddum á Instagram eftir að ég steig fram með þessa umræðu og sýnir það hversu mikil þörf er á þessari umræðu.“
Segðu okkur frá þema verkefnisins
„Bókin mun innihalda 40 myndir af íslenskum konum ásamt fræðsluefni um líkamsímynd kvenna. Konurnar verða ljósmyndaðar á nærfötunum og eru konurnar af öllum stærðum og gerðum. Þær eru meðal annars með stóma poka, óléttar, hafa misst útlim, nýbúnar að eignast börn, grannvaxnar, konur í góðum holdum og sterkbyggðar konur.
Markmið bókarinnar er að sýna að kynþokki er allavega og við ættum ekki að vera hræddar við að sýna hann eða hreinlega við það að vera kynþokkafullar, það gerir okkur ekkert minna klárar eða minna sterkar. Sjálf er ég með mastersgráðu í fjármálum og vil ég að konurnar í bókinni sýni það að þú getur verið framakona og samt birt kynþokkafulla mynd af þér. Fjöldi þeirra sem tóku þátt í þessari umræðu með mér á Instagram sýnir fram á gífurlega þörf fyrir fræðslu á þessu málefni.
Notkun internetsins fer sífellt vaxandi meðal ungmenna og pressan á útliti virðist vera mikil. Samfélagsmiðlar og fjölmiðlar stuðla oft að óheilbrigðri líkamsímynd með því meðal annars að sýna að langmestu leyti konur sem eru grennri heldur en eðlilegt þykir og sýna einstaklinga í yfirvigt í neikvæðu ljósi jafnvel þannig að þeir virðast misheppnaðir og eigi til að mynda erfitt með rómantísk samskipti. Ég vil að þessi bók fræði meðal annars ungmenni og varpi ljósi á hvað sé eðlilegt og að allt sé fallegt. Þar sem fegurðarstaðallinn virðist sífellt verða óljósari og lúmskari, fara konur ómeðvitað að miða sig við þessa óraunhæfu staðla. Bókin á að sýna að engin er með eins líkama og það skiptir máli að læra að elska hann í því formi sem hann er.“