Lambadagatal Ragnars Þorsteinssonar sauðfjárbónda og ljósmyndara í Sýrnesi í Aðaldal fyrir árið 2023 er komið út og er það í níunda sinn sem hann sendir frá sér sérstakt lambadagatal. Ragnar hefur veg og vanda að útgáfu lambadagtalsins líkt og undanfarin ár.
Hann tekur allar myndirnar á fjárbúi sínu í Sýrnesi og sér um umbrot og hönnun dagatalsins sem hefur verið fjármagnað á Karolinafund nú í sjö ár og fjármögnun þess alltaf tekist. Síðasti dagur fjármögnunar á Lambadagatal 2023 er 17. nóvember og nú vantar rétt herslumuninn að það náist.
Samkvæmt venju eru ljósmyndirnar teknar á sauðburði frá árinu áður þ.e.a.s. á Lambadagatali 2023 eru allar myndirnar teknar sl. vor á sauðburði 2022 og endurspegla því líka veðurfarið á þeim árstíma.
Fallegt með þjóðlegum fróðleik
Að venju prýða dagatalið stórar myndir af fallegum, marglitum, unglömbum um eins til tveggja sólarhringa gömlum lömbum úti í sínu náttúrulegu umhverfi. Dagatalið er í A4 stærð og hver mánuður á einni blaðsíðu. Það er gormað með upphengju og því auðvelt að hengja það upp þar sem hentar. Á það eru merktir allir hefðbundnir helgi- og frídagar. Einnig eru merkingar fyrir fánadaga, komu jólasveinanna, gömlu mánaðaheitin og ýmsir aðrir dagar sem tengjast sögu lands og þjóðar. Dagatalið er því ekki bara fallegt og dregur fram bros, heldur líka gagnlegt með sínum þjóðlega fróðleik.
Finnur velvild í garð sauðfjárbænda
Lambadagatölin hafa hlotið góðar viðtökur og vinahópur Lambadagatalanna á Facebook telur nú rúmlega 1.500 manns. Að sögn Ragnars þá er megintilgangur útgáfunnar „að breiða út sem víðast, fegurð og fjölbreytni íslensku sauðkindarinnar.“
„Það er líka mjög svo skemmtilegt og gefandi að standa í þessu og finna þá miklu velvild sem er meðal fólks til okkar
sauðfjárbænda og íslensku sauðkindarinnar sem hefur fætt okkur og klætt í gegnum aldirnar, og að maður tali nú ekki um hve skapgerðin og sterkur persónuleiki sauðkindarinnar og sjálfstæði hennar, hefur smitast í gegnum aldanna rás í genin okkar og gert okkur að þeirri þjóð sem við erum öll svo stolt af að tilheyra,“ segir Ragnar.