Skiptir máli að fólk klæðist sundfötum sem lætur því líða vel

Petra Bender hefur fylgst með baðmenningu til fjölda ára og hannar nú sundfatnað fyrir konur sem hún vill að þeim líði vel í og höfði til þeirra.

Petra Mynd: Karolina Fund
Auglýsing

Petra Bender er fata­hönn­uður og útskrif­að­ist úr Par­sons School of Design í New York með hæstu ein­kunn. Hún sótti MA-­nám í textíl í CSM í London og graf­íska hönnun í LHÍ. Hún hefur unnið á Íslandi og í London, þar á meðal fyrir Nike þar sem sér­staða hennar var þekk­ing á sport­fatn­aði og mynstur­gerð.

Undir merk­inu By Petra Bender hef hún hannað fata­lín­ur, þar á meðal sund­fatn­að. Hún stundar sjó­í­þróttir og blandar saman íþróttum og tísku, sem er sér­staða By Petra Bend­er. Hún safnar nú fyrir verk­efni á Karol­ina Fund.

Auglýsing

Hvernig vakn­aði hug­­myndin að verk­efn­inu?

„Ég hef unnið í sund­laug­unum í gegnum árin, eða síðan ég var 18-20 ára með skóla – alltaf á sumrin og líka á Ylströnd­inni í Naut­hóls­vík meðan að ég var í hönn­un­ar­námi. Þannig að ég er búin að fylgj­ast með bað­menn­ing­unni í gegnum árin, bæði sem starfs­maður og sund­gest­ur,“ segir Petra.

Hún seg­ist jafn­framt hafa mik­inn áhuga á íþróttafatn­aði en hún starf­aði fyrir Nike í London, eins og áður seg­ir. „Íþróttir og föt renna saman í eitt áhuga­mál. Þannig að já, það hefur kitlað í mörg ár að búa til sund­fatn­að.“

Petra segir að sjór og vatn sé svo heilandi en henni finnst skipta máli að fólk klæð­ist sund­fötum sem lætur því líða vel og höfðar til þess. „Ég hef mik­inn áhuga á úti­vist svo sem sjó­sundi og brim­bretti. Út frá því vakn­aði áhugi minn á þróun sport­fatn­aðar með vist­vænum áhersl­u­m.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Sund­menn­ingin er stór partur af íslensku sam­fé­lagi. Íslend­ingar á öllum aldri nota sund til að end­ur­næra sig; félags­lega, and­lega og lík­am­lega. Mark­miðið er að hanna sund­fatnað fyrir íslenskar kon­ur. Sniðið er inn­blásið af brim­brettafatn­aði með íslenskan sjó og sund­menn­ingu í huga. Sund­bol­inn hefur verið í þróun og er komin ein útfærsla af hon­um.

En mig langar að taka næsta skref og verður sund­bol­ur­inn þró­aður með öðrum efnum sem eru end­urunnin gæða­efni og umhverf­is­væn. Sniðið er hugsað til að ein­stak­ling­ur­inn geti sem best náð árangri í hreyf­ingu en á sama tíma er bol­ur­inn stíl­legur og þægi­leg­ur,“ segir hún.

Að end­ingu greinir Petra frá því að end­ur­skin sé í saumunum á fatn­aðnum sem sé hugsað til að sá sem klæð­ist sund­föt­unum sjá­ist í myrkri. „Ló­góið mitt er tveir sæhestar með ein­hyrn­ings­horn sem spegla sig í hvor öðr­um.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk