Páll Þór Magnússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri IceCapital, seldi eiginkonu sinni, Gabríelu Kristjánsdóttur, helmingshlut í 370 fermetra einbýlishúsi í Garðabæ fimm dögum eftir að hann var dæmdur til að greiða þrotabúi félagsins um 120 milljónir króna. Fasteignamat hússins er 87 milljónir króna. Þrotabúi IceCapital hefur ekki tekist að innheimta þá skuld sem Páll Þór var dæmdur til að greiða því. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
IceCapital hét áður Sund og var í eigu ekkju Óla Í Olís heitins og barna hennar. Páll Þór er giftur dóttur Gunnþórunnar Jónsdóttur, ekkju Óla. Félagið var mjög umsvifamikið fyrir hrun en var lýst gjaldþrota árið 2012. Alls var 51 milljarði króna lýst í búið en lítið hefur fengið upp í þær kröfur.
2. október 2014 var þrotabúi IceCapital dæmdar 520 milljónir í Héraðsdómi Reykjaness. Dómurinn var vegna riftunar á ýmsum gerningum stjórnenda félagsins sem áttu sér stað eftir bankahrunið, haustið 2008 og snemma árs 2009. Skiptastjóri þrotabús IceCapital segir að fyrrverandi helstu stjórnendur félagsins, Páll Þór og Jón Kristjánsson, skuldi búinu tæpar 350 milljóir króna með dráttarvöxtum. Þeir virðist þó ekki hafa lögheimili hérlendis lengur né vera með skráðar eignir á Íslandi. Fjöldi félaga í þeirra eigu hefur verið færður í erlent eignarhald á síðustu árum. Vegna þessa hefur búinu gengið illa að innheimta skuldir þeirra.
Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því að í afsali einbýlishússins í Garðabæ, sem er dagsett 7. október 2014, komi fram að Páll Þór hafi selt helmingshlut í húsnæðinu til eiginkonu sinnar sem eignaðist það þar með að fullu. Ekki kemur fram hvað var greitt fyrir hlutinn. Þetta gerðist fimm dögum eftir ofangreindan dóm.
Eitt riftunarmálanna sem dæmt var í í október 2014 snéri að sölu á 2/3 hlutar í þyrlufyrirtækinu Norðurflugi út úr IceCapital í desember 2008. Norðurflug er nú í eigu erlendra félaga sem tengjast eigendum IceCapital. Fyrirtækið hagnaðist um 160 milljónir króna á árunum 2013 og 2014. Þá seldu hluthafar í Norðurflugi þriðjungshlut í því til Air Greenland síðasta sumar á 200 milljónir króna.
Töldu sig fórnarlömb markaðsmisnotkunar
Þeir Páll Þór og Jón hafa löngum borið fyrir sig að hafa verið blekktir í viðskiptum við íslenska banka í rekstri IceCapital. Síðla árs 2010 tók héraðsdómur Reykjavíkur fyrir mál Arion banka gegn félaginu vegna vanefnda á lánasamningi. Í málinu bar lögmaður Sund/IceCapital, fyrir sig að félagið hefði verið misnotað markaðsmisnotkunartilburðum Kaupþings, fyrirrennara Arion banka, til að kaupa hlutabréf bankanum til að hafa áhrif verðmyndun hans. Þá hafi rekstur Kaupþings eftir árið 2006 verið „einn blekkingarleikur af hálfu stjórnenda bankans" og fjárfestar hafi „bæði verið blekktir og beittir svikum".
Í málatilbúnaði Sunds/IceCapital sagði auk þess að stjórnendur Kaupþings hafi „á árunum 2007 til 2008 unnið markvisst þágu einstakra hluthafa sinna og tekið stöðu gegn íslensku krónunni". Á grundvelli þessara raka fór lögmaður Sund/IceCapital fram á að skjólstæðingar hans yrðu ekki bundnir af lánasamningnum. Héraðsdómur hafnaði þessum rökum og Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu nokkrum mánuðum síðar. IceCapital var gert að greiða Arion banka 3,5 milljarða króna.
Sami hópur var aftur mættur fyrir dómstóla vorið 2011, nú vegna dótturfélags IceCapital, Iceproperties, sem eigendurnir vildu ekki gefa upp til gjaldþrotaskipta þrátt fyrir himinháar skuldir. Í málflutningi fyrir dómi kom fram í máli lögmanns Iceproperties að hann teldi skjólstæðinga sína hafa verið fórnarlömb markaðsmisnotkunar af hendi Glitnis banka þegar þeir keyptu bréf í honum fyrir um átta milljarða króna, sem voru fengnir að láni hjá Glitni. Dómstólar ´féllust ekki á þessi rök og Iceproperties var gefið upp til gjaldþrotaskipta.