Kosningaspá sýnir fylgið enn falla af Pírötum

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, í þingsal.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, í þingsal.
Auglýsing

Fylgi Pírata heldur áfram að minnka sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Bald­urs Héð­ins­sonar og Kjarn­ans sem unnin var í morgun úr fyr­ir­liggj­andi könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi stjórn­mála­flokka. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nú með mest fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spánni en tapar þó fylgi síðan spáin var gerð síð­ast.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er nú gerð í annað sinn, fyrir Alþing­is­­kosn­­ingar sem boð­aðar hafa verið í haust. Baldur hefur útbúið spálíkan sem vigtar kann­­anir sem gerðar eru á fylgi stjórn­­­mála­­flokka eftir áreið­an­­leika. Sama líkan var notað fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar árið 2014 fyrir fylgi fram­­boða í Reykja­vík og nið­­ur­­staðan birt á vef Kjarn­ans og á vefn­um kosn­­inga­­spá.­is. Í nýj­­ustu kosn­­inga­­spánni eru nýj­­ustu kann­an­­irnar vegn­­ar: Skoðn­ana­könnun Félags­vís­inda­stof­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 17. maí, skoð­ana­kann­­anir Frétta­­blaðs­ins 9. maí og 2. til 3. maí, Þjóð­­ar­púls Gallup 14. til 28. apríl og skoð­ana­könnun MMR 22. til 26. apr­íl.

Í nýj­ustu kosn­inga­spánni mæl­ast Píratar með 28,1 pró­sent fylgi, miðað við 29,3 pró­sent í síð­ustu kosn­inga­spá. Sjálf­stæð­is­flokkur minnkar um hálft pró­sentu­stig og er með 28,5 pró­sent fylgi.

Auglýsing

Vinstri græn bæta við sig örlitlu fylgi og mælist nú með 17,2 pró­sent fylgi. Fram­sókn og Sam­fylk­ingin eru enn með minna en 10 pró­sent. Fram­sókn er með 9 pró­sent sam­kvæmt kosn­inga­spánni og Sam­fylk­ingin 8,5 pró­sent. Björt fram­tíð er enn með um fjögur pró­sent, og skammt undan er Við­reisn með 3,2 pró­sent. Ætla má að fram­boð sem hljóta minna en fimm pró­sent fylgi á lands­vísu nái ekki kjöri til Alþing­is.

Tvö ný fram­boð mæl­ast í nýj­ustu kosn­inga­spánni. Það eru Dögun og Alþýðu­fylk­ingin sem bæði mæl­ast með undir eitt pró­sent fylgi. Önnur fram­boð mæl­ast varla.



Hvað er kosn­inga­spá­in?

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­leiki könn­un­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­inga­úr­slit­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None