Lög á verkfall sjómanna voru tilbúin í ráðuneytinu

Sjávarútvegsráðherra var tilbúin með lagasetningu á verkfall sjómanna áður en kjaradeila þeirra við útvegsmenn leystist í nótt. Afstaða ríkisins í deilunni er fordæmisgefandi fyrir kjaradeilur annara stétta.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Auglýsing

„Ég get alveg við­ur­kennt það að ég var til­búin með lög­in,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um kjara­deilu sjó­manna og útgerð­ar­manna sem leyst­ist í nótt. Þor­gerður Katrín var í síma­sam­tali í Viku­lok­unum á Rás 1 í hádeg­inu.

Spurð hvort hún hafi hótað deilu­að­ilum í kjara­deil­unni með laga­setn­ingu segir Þor­gerður Katrín ekki svo hafa ver­ið. Deilu­að­ilar hafi hins vegar vitað að hún hafi verið til­búin með laga­setn­ing­una ef að höggva þyrfti á hnút­inn. Ráð­herra hitti samn­inga­nefndir beggja aðila í gær­kvöldi og lagði til mála­miðl­un­ar­til­lögu sem sjó­mönnum og útgerð­ar­mönnum þótti ganga of skammt.

Það lá því á fyrir báða aðila að ná samn­ingum í nótt til þess að leysa deil­una án aðkomu rík­is­ins. Það var og gert og það sam­þykkt að ríkið skyldi ekki hafa neina aðkomu að nýjum samn­ing­um.

Auglýsing

Þor­gerður Katrín seg­ist hafa verið búin að ræða það í rík­is­stjórn, á fundi á föstu­dag, að það gæti komið til þess að lög yrðu sett á verk­fall­ið. Hún seg­ist vera fegin að ekki hafi komið til þess og að aðilar deil­unnar hafi getað leyst ágrein­ing­inn án aðkomu rík­is­ins.

„Þetta eru mik­il­væg skila­boð inn í aðrar kjara­deil­ur,“ segir Þor­gerður Katrín. „Deilu­að­ilar geta klárað svona.“ Hún bendir á að þarna hafi það sann­ast að ríkið þurfi ekki að hafa aðkomu í erf­iðar kjara­deilur og að það eigi að líta á hegðan stjórn­valda í þess­ari deilu sem for­dæmi fyrir þær kjara­við­ræður sem fyr­ir­hug­aðar eru. „Ríkið mun ekki stíga inn í deil­ur.“

Þor­gerður Katrín segir að ríkið geti hins vegar komið að almennum kjara­deilum með almennum aðgerð­um. Hún seg­ist hins vegar vera ósam­mála því að ríkið eigi að beita sér­tækum aðgerðum í kjara­deil­um.

Bene­dikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra fagnar því að ekki hafi komið til þess að ríkið stigi inn í kjara­deil­una. „Það eru frá­­­bærar fréttir að samn­ingar hafi tekist,“ skrifar Bene­dikt á Face­­book-­­síðu sína í morg­un. „[E]kki síst að ríkið hafi ekki þurft að koma að samn­ing­un­­um. Þor­­gerður Katrín stóð sig eins og hetja, en það er eng­inn vafi á því að hennar afstaða markar tíma­­mót í deilum á vinn­u­­mark­aði. Samn­ingar eiga að vera á kostnað vinn­u­veit­enda en ekki rík­­is­ins. Til ham­ingju sjó­­menn, útgerð­­ar­­menn og Þor­­gerð­­ur!“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None