HÆTTIÐ! skrifar Trump um ESB

Verndartollar ESB eru slæmir að mati Donalds Trump sem er ánægður með vinnu við nýjan og „stóran“ fríverslunarsamning við Bretland.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Auglýsing

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, er ánægður með vinnu við nýjan frí­versl­un­ar­samn­ing við Bret­land sem á að taka við eftir Brex­it. Trump fjall­aði um þetta á Twitter en var gagn­rýn­inn á Evr­ópu­sam­bandið um leið.

„Við vinnum að stórum versl­un­ar­samn­ingi við Bret­land. Gæti orðið mjög stór og spenn­andi. STÖRF! ESB er mjög vernd­ar­tolla­sinnað við BNA. HÆTT­IÐ!“ skrif­aði Trump á Twitt­er, í laus­legri þýð­ingu.

Trump Tístir um Brexit, 25. júlí 2017.

Full­trúar Hvíta húss­ins og við­skipta­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna vildu ekki svara spurn­ingum frétta­veit­unnar Reuters um málið þegar eftir því var leit­að.

Fyrr í þessum mán­uði ákvað Trump að tryggja fljóta vinnu við nýjan frí­versl­un­ar­samn­ing milli Banda­ríkj­anna og Bret­lands, jafn­vel þó breskir ráða­menn hafi verið efins um að slíkt væri mögu­legt.

Auglýsing

Á fundi G20-­ríkj­anna í Hamburg í Þýska­landi fyrr í júlí ræddi Trump við Ther­esu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Þar sagði hann tví­hliða samn­ingi sem „mjög, mjög mik­il­vægu máli“ og sagði mjög sterkan samn­ing verða frá­bæran fyrir bæði ríki.

Í kjöl­far Brexit mun Bret­land þurfa að semja um nið­ur­fell­ingu tolla og við­skipti við önnur ríki á nýjan leik. Hversu umfangs­mikil sú vinna þarf að vera á eftir að koma í ljós, en enn hefur ekki verið ákveðið (í það minnsta opin­ber­lega) hversu mik­ill aðskiln­aður Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins verð­ur.

Brexit – Bret­land gengur úr Evr­ópu­sam­band­inu – mun verða í mars 2019, tveimur árum eftir að May virkj­aði fimmtu grein Lis­bon-sátt­mál­ans sem fjallar um úrsögn úr Evr­ópu­sam­starf­inu. Brexit mun verða jafn­vel þó ekki hafi verið samið um hvernig sam­skiptum Bret­lands og ESB verði háttað til fram­tíð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent