Margt verður eins eftir Brexit 2019 segir fjármálaráðherrann

Fjármálaráðherra Bretlands, Philip Hammond, segir Breta hafa óskað eftir þriggja ára umbreytingartímabili eftir að Brexit á sér formlega stað árið 2019.

Philip Hammond er fjármálaráðherra Bretlands.
Philip Hammond er fjármálaráðherra Bretlands.
Auglýsing

Sam­band Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins verður hugs­an­lega mjög líkt því sem nú er, eftir að Bret­land gengur form­lega úr Evr­ópu­sam­band­inu í mars 2019. Philip Hamm­ond, fjár­mála­ráð­herra í bresku rík­is­stjórn­inni, hefur stað­fest að breska samn­inga­nefndin sæk­ist eftir því að ákveðið umbreyt­ing­ar­tíma­bil eigi sér stað í þrjú ár eftir form­legt Brex­it.

Frá þessu var greint á vef breska dag­blaðs­ins The Guar­dian í morg­un.

Í þessu felst að eftir að Brexit á sér stað muni Bretar enn hafa aðgang að sam­eig­in­lega mark­aði ESB, enn leyfa frjálst flæði fólks inn og út úr Bret­landi og að það geti ekki gert versl­un­ar­samn­inga við önnur lönd eitt og sér.

Auglýsing

Þetta umbreyt­ing­ar­tíma­bil mun svo renna út árið 2022, í aðdrag­anda næstu þing­kosn­inga eftir fimm ár. Með þessu er í raun verið að fram­lengja þann tíma sem Bret­landi er gef­inn til þess að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Hamm­ond segir að það sé víð­tækur stuðn­ingur við þetta í rík­is­stjórn Ther­esu May, for­sæt­is­ráð­herra í minni­hluta­stjórn Íhalds­flokks­ins. Þessi þrjú ár muni gera útgöngu Bret­lands mun „mýkri“.

May er nú í þriggja vikna sum­ar­fríi og þess vegna hefur ekki verið sagt frá þessum áformum breskra stjórn­valda opin­ber­lega, jafn­vel þó liðin sé vika síðan ákveðið var að óska eftir við ESB að þessi leið verði far­in. Hamm­ond stað­festi sögu­sagnir um þetta í útvarps­við­tali í dag.

Myrk ver­ald­ar­sýn Mick Jag­ger

Þrátt fyrir að útlit sé fyrir að Bret­land verði í Evr­ópu­sam­band­inu í fimm ár í við­bót er Brexit þegar farið að seytla í hina ýmsu kima bresks sam­fé­lags.

Mick Jag­ger, best þekktur sem söngv­ari goð­sagna­kenndu rokksveit­ar­innar The Roll­ing Sto­nes, gaf frá sér tvö lög á fimmtu­dag sem lýsa myrkri ver­ald­ar­sýn Jag­gers í kjöl­far ákvörð­unar Breta um að segja sig úr Evr­ópu­sam­starf­inu.

Lögin Eng­land Lost og Gotta Get A Grip seg­ist Jag­ger hafa samið eftir að hafa verið hald­inn kvíða og óvissu um breyt­ingar á stjórn­mála­lands­lag­inu. Lögin tvö eru þau fyrstu sem Jag­ger gefur út einn síðan árið 2011.

Eng­land Lost



Gotta Get A Grip



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent