Fullorðinsvandi Facebook: Unglingum fækkar

Bandarískum unglingum mun fækka á Facebook á þessu ári.

Mark Zuckerberg er stofnandi og aðaleigandi Facebook.
Mark Zuckerberg er stofnandi og aðaleigandi Facebook.
Auglýsing

Færri ung­menni á aldr­inum 12 til 17 ára munu nota Face­book á þessu ári en í fyrra, eða því sem nemur 3,4 pró­sentum á milli ára, ef marka má spá mark­aðs­grein­and­ans eMar­ket­er. Frá þessu er greint á vef CNBC.

Ung­mennin sækja frekar í Snapchat og Instagram í stað þess að fara á Face­book. Enn fremur mun mán­að­ar­leg notkun barna undir 12 ára aldri og í ald­urs­hópnum 18 til 24 ára vaxa hægar en áður hafði verið spáð, segir eMar­ket­er. Þessi nýja spá gefur vís­bend­ingar um að ungt fólk hafi ekki eins mik­inn áhuga á Face­book og áður.

Fjöldi not­enda á Face­book hefur aldrei verið meiri en um þessar mundir en á þessu ári urðu not­endur meira en tveir millj­arð­ar. Face­book glímir þess vegna við full­orð­ins­vanda, enda þarf fyr­ir­tækið á unga fólk­inu að halda til þess að geta birt því aug­lýs­ingar og ala það upp í umhverf­inu.

Auglýsing

Hegðun ung­menna á Face­book sé að breyt­ast þannig að þau skrá sig sjaldnar inn á sam­fé­lags­mið­il­inn og eyða skemmri tíma þar en áður. Í stað­inn eyða þau tíma á Snapchat og Instagram. Auk þeirra sé að verða til hópur ungs fólks sem aldrei hefur stofnað reikn­ing á Face­book.

Á sama tíma og þetta er að ske vex hópur banda­rískra mán­að­ar­not­enda Snapchat hratt, eða um 5,8 pró­sent á þessu ári. Grein­ing­ar­fyr­ir­tækið eMar­keter jók vaxt­ar­spá sína fyrir Snapchat í öllum ald­urs­hópum nema þeim elsta. Mesti vöxt­ur­inn verður að öllum lík­indum í ald­urs­hópnum 18 til 24 ára, eða um 20 pró­sent.

Hið sama má segja um Instagram þar sem hópur banda­rískra mán­að­ar­not­enda vex um 23,8 pró­sent árið 2017. Meðal barna undir 12 ára aldri vex hóp­ur­inn um 19 pró­sent og í hópi ung­linga (12 til 17 ára) fjölgar um 8,8 pró­sent á þessu ári.

Instagram er í eigu Face­book en sam­fé­lags­miðl­aris­inn keypti mynda­for­ritið á einn millj­arð Banda­ríkja­dala árið 2012 til þess að styrkja mark­aðs­hlut­deild sína meðal ungs fólks. Face­book hefur einnig reynt að kaupa Snapchat en stofn­endur snapps­ins höfn­uðu þriggja millj­arða dala til­boði. Face­book greip þá til þess ráðs að klóna ein­kenni Snapchat í miðla sína.

For­svars­menn Face­book vildu ekki tjá sig fjöl­miðla þegar eftir því var leit­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent