Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ákveðið að skipa nefnd til að meta umfang kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni eða ofbeldis, auk eineltis á vinnumarkaði.
Þetta kemur fram í frétt velferðarráðuneytisins sem birtist í dag.
Nefndin er skipuð til að bregðast við brýnni þörf fyrir aðgerðir sem umfjöllun um þessi mál í samfélaginu að undanförnu hefur leitt í ljós.
„Í fjölmiðlum undanfarið hefur átt sér stað umræða í samfélaginu þar sem fjöldi fólks, fyrst og fremst konur, hefur greint frá þeirri reynslu að hafa sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi á vinnustað. Auk þess að meta umfang vandans er nefndinni ætlað að skoða aðgerðir og viðbrögð atvinnurekenda til að koma í veg fyrir athæfi sem þetta á vinnustöðum og hvernig tekið er á málum sem þessum ef upp um þau kemst eða grunur er um slík brot eigi sér stað,“ segir í frétt ráðuneytisins.
Kannað hvernig vinnuveitendur hafa brugðist við
Gert er ráð fyrir að nefndin standi fyrir þríþættri rannsókn þar sem könnuð verði reynsla starfsmanna af kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða ofbeldi á vinnustöðum auk eineltis, ýmist sem þolendur, vitni eða gerendur.
Jafnframt verði kannað meðal vinnuveitenda hvernig þeir hafa brugðist við framangreindum aðstæðum á vinnustöðum, þar á meðal til hvaða aðgerða hafi verið gripið. Þá verði kannað meðal vinnuveitenda hvort þeir hafi gert skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum sínum, þar með talin áætlun um forvarnir þar sem meðal annars komi fram til hvaða aðgerða skuli gripið til að koma í veg fyrir framangreindar aðstæður á vinnustöðum þeirra og til hvaða aðgerða skuli gripið ef komi fram kvörtun, ábending eða rökstuddur grunur um aðstæður eða brot af þessum toga.
Í starfshópinn verða skipaðir fulltrúar frá samtökum launafólks og atvinnurekenda, Jafnréttisstofu, Vinnueftirliti ríkisins, fjármála- og efnaghagsráðuneytinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Félags- og jafnréttismálaráðherra mun skipa formann nefndarinnar.
Starfshóp falið að kortleggja þörf gerenda
Þorsteinn hefur einnig óskað eftir tilnefningum í starfshóp sem falið verður að kortleggja og skilgreina þörf gerenda í ofbeldismálum fyrir meðferð og einnig þeirra sem taldir eru í áhættuhópi sem mögulegir gerendur. Hópnum er einnig ætlað að efla forvarnir og fræðslu til að fyrirbyggja ofbeldi.
Velferðarráðuneytið hefur undanfarin misseri leitt vinnu við mótun áætlunar um aðgerðir gegn ofbeldi í samfélaginu. Að vinnunni hafa komið fulltrúar félags- og jafnréttismálaráðherra, heilbrigðisráðherra, dómsmálaráðherra og menntamálaráðherra. Meðal þess sem þessi vinna hefur leitt í ljós er þörf fyrir fjölbreyttari meðferðarúrræði fyrir gerendur í ofbeldismálum. Í ljósi þessa og vegna umræðunnar í samfélaginu að undanförnu um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni hefur félags- og jafnréttismálaráðherra ákveðið að skipa fyrrnefndan starfshóp. Hópnum er ætlað leggja fram tillögur um viðeigandi úrræði fyrir gerendur og hvernig megi efla forvarnir og fræðslu.
Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum frá velferðarráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu, Embætti landlæknis, Bjarkarhlíð, Fangelsismálastofnun, Landspítalanum, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og frá Heimilisfriði sem er meðferðarúrræði fyrir gerendur í ofbeldismálum. Hópnum er ætlað að hafa samráð við velferðarþjónustu sveitarfélaga og aðra sérfræðinga á þessu sviði eftir atvikum.