Ragnar: Gríðarleg vonbrigði

Formaður VR segir niðurstöðu atkvæðagreiðslu mikil vonbrigði. Kjarasamningar munu halda fram til áramóta.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR á formannafundi ASÍ í dag.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR á formannafundi ASÍ í dag.
Auglýsing

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir nið­ur­stöður á for­manna­fundi ASÍ í dag gríð­ar­leg von­brigði. Sam­kvæmt þeim halda almennir kjara­­samn­ingar fram að ára­mótum en á fund­inum voru greidd leyn­i­­lega atkvæði um upp­­­sögn á samn­ing­un­um.

„Mér finnst við vera að veikja okkar stöðu gríð­ar­lega. Það eru mikil von­brigði að við skyldum ekki standa saman um að segja upp samn­ing­unum þegar for­sendur eru brostn­ar,“ segir Ragnar í sam­tali við Kjarn­ann. Hann spyr sig hvers vegna eigi að hafa for­sendur ef samn­ingum er ekki sagt upp þegar þessar sömu for­sendur eru brostn­ar. 

Hann seg­ist skilja smærri félögin sem hafna því að segja upp samn­ing­um. „En þarna hefðum við haft mikið og gott tæki­færi til þess að standa í lapp­irn­ar, sér­stak­lega vegna þess sem á undan er gengið og mun ganga á næstu vikur og mán­uði þegar fyr­ir­tækin byrja að birta sína reikn­inga,“ segir hann. 

Auglýsing

Næst á dag­skrá er að setj­ast niður með bak­landi VR, að sögn Ragn­ars, og búa til kröfu­gerð. „Það er ekk­ert annað sem við getum gert nema vinna vinn­una og vera til­búin fyrir ára­mót. Sjá hvort okkar kröfu­gerðir stemmi við aðra,“ segir hann. 

Alls greiddu 49 full­trúar atkvæði en þar af vildi 21 segja samn­ing­unum upp en 28 að þeir héldu gildi sínu. Hins vegar eru vægi þeirra full­trúa sem greiddu atkvæði með því að segja samn­ing­unum upp tölu­vert meira en þeirra sem vildu að þeir héldu sér, eða 66,9 pró­sent gegn 33,1 pró­senti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent