Faraldur skotárása í Bandaríkjunum síðastliðin 19 ár

Samkvæmt rannsókn The Washington Post hafa skotárásir í skólum í Bandaríkjunum haft áhrif á 208 þúsund einstaklinga. Tólf skotárásir hafa orðið þar í landi frá áramótum.

USAflag
Auglýsing

Yfir 200 þús­und skóla­börn í 212 skólum víðs vegar í Banda­ríkj­unum hafa upp­lifað skotárás í skól­anum sínum frá árinu 1999, sam­kvæmt rann­sókn The Was­hington Post. Banda­ríkja­stjórn heldur ekki utan um tölur yfir skotárásir í skólum og á hversu marga þær hafa haft áhrif og því lögð­ust blaða­menn á The Was­hington Post í rann­sókn á því. 

Fréttir fjöl­miðla, opnir gagna­grunnar og upp­lýs­ingar frá lög­reglu voru not­aðar í rann­sókn­ina. Rann­sóknin hefur tekið rúmt ár, en einnig voru smærri árásir skoð­að­ar, árásir sem röt­uðu ekki í heims­press­una.  

Sam­kvæmt rann­sókn­inni hafa 131 börn, kenn­arar og aðrir látið lífið í skotárásum í skólum og 272 særst. Skotárás­irnar hafa þó haft áhrif á tölu­vert fleiri. Sjö af tíu árás­ar­mönn­unum voru undir 18 ára aldri og er með­al­ald­ur­inn 16 ár. Yfir 85 pró­sent árás­armann­anna komu með vopnið að heiman eða höfðu fengið það hjá vini eða ætt­ingja.

Auglýsing
Í gær voru 19 ár liðin frá skotárásinni í Col­umbine High School í Colora­do, þar sem tveir árás­ar­menn skutu tólf nem­endur og einn kenn­ara til bana. Nem­endur í yfir tvö þús­und skólum í Banda­ríkj­unum gengu út úr kennslu­stofum í gær til að minn­ast þeirra látnu og vekja athygli á skotárásum í skól­um. Skotárásin í Col­umbine er upp­haf­s­punktur rann­sóknar The Was­hington Post. Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Mich­ael Moore gerði heim­ild­ar­mynd um skotárás­ina árið 2002 sem nefn­ist Bowl­ing for Col­umbine. 

Á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins hafa verið þrettán skotárásir í Banda­ríkj­unum en það er mesti fjöldi skotárása á fyrsta árs­fjórð­ungi síðan árið 1999. Í fyrra voru fjórtán skotárásir í skólum og þrettán árið þar áður. Nýleg­asta árásin sem rataði í heims­press­una var í Majory Sto­neman Dou­glas High School í Park­land í Florida en þá lét­ust 17 ein­stak­lingar og 17 særð­ust. Þá gekk 19 ára karl­mað­ur, fyrr­ver­andi nem­andi við skól­ann, inn á skóla­svæðið með AR-15 hálf­sjálf­virkan riffil og hóf skotárás. Árásin átti sér stað þann 14. febr­úar síð­ast­lið­inn en í kjöl­farið hófu eft­ir­lif­andi nem­endur úr skól­anum átak gegn núver­andi byssu­lög­gjöf, sem þau vilja breyta.

March for Our Lives

Átakið nefn­ist March for Our Lives sem útleggs á íslensku göngum fyrir líf okk­ar. Þann 24. mars síð­ast lið­inn var svo mót­mælt víðs vegar um Banda­ríkin og voru fjöl­menn mót­mæli í höf­uð­borg Banda­ríkj­anna, Was­hington DC. Nem­endur við Majory Sto­neman Dou­glas High School voru áber­andi í mót­mæl­unum þar í borg er ræða Emmu Gonzá­lez, nem­anda við skól­ann, eft­ir­minni­leg.





Atburðir sem þessir rata þó ekki alltaf í heims­press­una en í gær var skotárás í For­est High School í Ocala í Florida. Einn særð­ist og eng­inn lést, en lög­reglan brást fljótt við. Þetta átti sér stað þegar nem­endur gengu út úr skóla­stofum til að mót­mæla skotárásum í skól­um. Nem­andi í skól­anum tók upp mynd­band og deildi því á Twitter þegar lög­reglan kom inn í skóla­stofu stuttu eftir að skot heyrð­ust á skóla­göng­un­um. Árás­armað­ur­inn, sem er 19 ára gam­all og ekki nem­andi í skól­an­um, hefur verið hand­tek­inn. 



Þar á undan voru aðeins 32 dagar liðnir frá síð­astu skotárás í skóla í Banda­ríkj­un­um. Einn lést og einn særð­ist þegar 17 ára drengur kom í skól­ann, Great Mills High Scool í Great Mills í Mar­yland, með Glock hálf­sjálf­virka skamm­byssu. Á síðu The Was­hington Post má skoða ítar­lega síð­ustu skotárás­irnar sem hafa orðið í Banda­ríkj­un­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent