Ásmundur Einar mun ekki mæta á fund velferðarnefndar

Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur afboðað sig á fund velferðarnefndar Alþingis næstkomandi mánudag.

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur afboðað sig á opinn fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis á mánu­dag­inn. Þetta kemur fram í frétt Stund­ar­innar í dag og stað­festi Hall­dóra Mog­en­sen, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Pírata, þetta í sam­tali við Kjarn­ann. 

­Nefnd­inni var til­kynnt þetta í dag og mun því fund­ur­inn falla nið­ur.

Eins og kom fram í fréttum í gær ­boð­að­i Hall­dóra félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra á opinn fund í vel­ferð­ar­nefnd næst­kom­andi mánu­dag. Ásmundur Einar sagði í fréttum RÚV í gær að hann myndi mæta á fund­inn og fara yfir mál­in. 

Athuga­semd gerð kl. 19:40: Tekin hefur verið sú ákvörðun að halda fund­inn eftir allt saman næst­kom­andi mánu­dag eftir mis­skiln­ing milli nefndar og ráðu­neyt­is. 

Auglýsing

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, beitti sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn. Þetta kom fram í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar í gær. 

Segir jafn­framt að Bragi hafi hann átt ítrekuð sam­skipti við föður manns­ins sem er mál­kunn­ugur Braga frá því þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál.

Ásmundur Einar var upp­lýstur um máls­at­vik, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­inn­ar, og afskipti Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli á fundi í ráðu­neyt­inu í lok jan­úar 2018. 

Hann er nú staddur erlendis en sagð­i Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við Kjarn­ann í gær að hún hefði heyrt í Ásmundi Ein­ari og að þau myndu fara yfir málin þegar hann kemur til bak­a. 

Aðspurð um hvort að þau atriði sem nú liggja fyrir eftir umfjöllun Stund­ar­inn­ar, um afskipti Braga að máli manns­ins sem grun­aður var um að brjóta gegn dætrum sín­um, breyti ein­hverju þegar kemur að stuðn­ingi Katrínar sjálfrar og rík­is­stjórn­ar­innar við fram­boð Braga hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum ítrek­aði hún að hún myndi ræða málið við Ásmund þegar hann kemur að utan.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent