Vilja binda enda á áreitni á vinnustað

Kvenkyns málflutningsmenn í Bretlandi hafa nú hrundið af stað átaki til að binda enda á áreitni og valdaójafnvægi í stéttinni.

Breski fáninn og mótmæli lögfræðinga
Auglýsing

Konur í hópi breskra mál­flutn­ings­manna hafa nú tekið sig saman og stofnað hóp með það að leið­ar­ljósi að binda enda á áreitni sem þær verða fyrir í starfi. Þetta kemur fram í frétt The Times sem birt­ist í dag. 

Ekki er úr vegi að bera þetta átak við þá fjöl­mörgu fabe­book-hópa sem hafa verið stofn­aðir síð­ast­liðna mán­uði og miss­eri á Íslandi varð­andi kyn­bundið ofbeldi og áreitni. Her­ferðin nefn­ist Behind the Gown sem hægt er að þýða sem Bak­við skikkj­una og vísar í þann fatnað sem breskir mál­flutn­ings­menn verða að klæð­ast í dóm­sal.

­Kon­urnar telja valda­ó­jafn­vægi vera innan stétt­ar­innar og að það eigi ekki ein­ungis við um kyn­ferð­is­lega áreitni. Þessu verði að breyta. 

Í frétt­inni kemur fram að kven­kyns mál­flutn­ings­menn til­kynni ekki áreitni sem þær verða fyrir í starfi, þrátt fyrir að þeim sé skylt að gera það. Í könnun sem gerð var árið 2016 meðal mál­flutn­ings­manna hafi komið fram að 40 pró­sent þátt­tak­enda höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í starfi. Þrátt fyrir það hafi ein­ungis tvær kvart­anir borist til­ Bar Stand­ards Board, sem er eins konar lög­manna­fé­lag þar í land­i. 

Ástæð­urnar fyrir þessu eru nokkrar og sam­ofn­ar, meðal ann­ars spilar smæð stétt­ar­innar inn í og þurfa yngri starfs­menn iðu­lega að treysta á þá eldri þegar kemur að starfs­frama, segir í frétt­inni. Vegna þess séu konur rag­ari við að til­kynna brot sem þær verða fyr­ir. 

Auglýsing

Þann 7. des­em­ber síð­ast­lið­inn sendu konur í rétt­ar­vörslu­kerf­inu á Íslandi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær kröfð­ust þess að vinna gegn kyn­bundnu ofbeldi og áreiti yrði sett í for­gang og að allir vinnu­veit­endur tækju ábyrgð á að upp­ræta vanda­mál­ið. „Kyn­bundið áreiti, mis­munun eða ofbeldi á ekki að líð­ast og krefj­ast konur þess að á þær sé hlustað og að allir sam­verka­menn taki ábyrgð á því að breyta til betri veg­ar,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Brans­inn á Íslandi mjög karllægur

Nokkur gagn­rýni lét á sér kræla varð­andi dag­­skrá Laga­­dags­ins 2018 sem hald­inn var þann 27. apríl síð­ast­lið­inn á vegum Lög­­­manna­­fé­lags Íslands, Lög­­fræð­inga­­fé­lags Íslands og Dóm­­ara­­fé­lags Íslands­. Nokkrar konur höfðu sam­­band við nefnd sem sá um skipu­lagn­ingu Laga­­dags­ins og báðu um að sér­­­stök mál­­stofa yrði við­höfð um #metoo-um­ræðu. Þegar dag­­skráin var síðan kynnt bólaði ekk­ert á slíkri umræðu eða mál­­stofu og sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans þá voru svörin á þá leið að mál­efnið myndi ekki trekkja næg­i­­lega vel að og of langt væri síðan yfir­­lýs­ing kvenna innan rétt­­ar­vörslu­­kerf­is­ins hefði verið til að eiga erindi á við­­burð­inn.

Úr varð að hafa örmál­stofu um #metoo-­bylt­ing­una þar fjallað var um mögu­leg við­brögð við henni innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins.

Dagný Ara­dóttir Pind var ein þeirra sem gagn­rýndi dag­­skrána áður en henni var breytt. Hún sagði í sam­tali við Kjarn­ann á sínum tíma að mál­efnið hefði átt fullt erindi og rætt hefði verið innan stétt­­ar­innar síð­­­ustu mán­uði að mikil þörf væri á því að ræða #metoo enn frek­­ar. „Við áttum okkur allar á því hvernig brans­inn er en hann er sög­u­­lega mjög karllæg­­ur,“ sagði hún.

Hún sagði enn fremur að #metoo-um­ræður skipti enn máli, sér­­stak­­lega í ljósi þess að margar konur hefðu ekki viljað skrifa undir yfir­­lýs­ing­una á sínum tíma eða deila sögum vegna smæðar sam­­fé­lags­ins. „Svona menn­ingu verður ekki umturn­að, einn, tveir og tíu,“ bætti hún við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent