Thierry Henry og Belgar gegn Frakklandi - Grannaslagur í undanúrslitaleik HM

Fyrri undanúrslitaleikurinn á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu fer fram klukkan sex í dag og er sannkallaður nágrannaslagur þegar lið Frakklands mætir liði Belgíu.

Frakkland Belgía
Auglýsing

Fyrri und­an­úr­slita­leik­ur­inn á Heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu fer fram klukkan sex í dag og er sann­kall­aður nágranna­slagur þegar lið Frakk­lands mætir liði Belg­íu.

Sig­ur­veg­ari leiks­ins mun mæta annað hvort Króa­tíu eða Englandi í úrslita­leik móts­ins sem fram fer á sunnu­dag. Frakkar hafa einu sinni orðið heims­meist­arar - Belgar aldrei, né heldur hafa þeir náð í úrslita­leik­inn.

Bæði liðin unnu riðla sína á mót­inu. Frakk­land var í riðli með Dan­mörku, Perú og Ástr­alíu en Belgar voru með Eng­lend­ing­um, Panama og Tún­is. Frakkar unnu síðan Argent­ínu í sextán liða úrslitum en Belgar slógu út Jap­ani. Belgar unnu að lokum frá­bæran sigur á fimm­földum heims­meist­urum Bras­ilíu í 8-liða úrslit­um. Frakkar hins vegar slógu út tvö­falda heims­meist­ara liðs Úrúg­væ.

Auglýsing

Liðin tvö þekkj­ast vel. Leik­ur­inn sem fram fer í kvöld verður 74. skiptið sem liðin mæt­ast. Belgar hafa oftar unn­ið, 30 viður­eign­ir, Frakkar hafa tekið 24 viður­eignir og 19 sinnum hafa liðin skilið jöfn.

Belgar unnu síð­ustu viður­eign lið­anna sem fram fór árið 2015 á State de France í Par­ís, 4-3. Síð­asti keppn­is­leikur milli lið­anna var leikur um 3. sæti á HM 1986 í Mexíkó. Þar unnu Frakkar 4-2 eftir fram­leng­ingu.

Leik­ur­inn á eftir verður í fyrsta sinn frá árinu 2006 sem Frakkar ná í und­an­úr­slit­in. Á því móti kom Zinedine Zidane lið­inu í und­an­úr­slitin með marki úr víta­spyrnu gegn Portú­gal. Leik­ur­inn fór 1-0. Belgar hafa einu sinni kom­ist í und­an­úr­slit­in, á mót­inu í Mexíkó árið 1986. Þá töp­uðu þeir 2-0 gegn Argent­ínu, sem urðu meist­arar á mót­inu.

Mynd: FIFAFranska lands­liðs­hetjan og goð­sögnin Thi­erry Henry er röngu megin við  borðið að þessu sinni, en hann er aðstoð­ar­þjálf­ari Belga. Henry lék 123 lands­leiki fyrir Frakk­land og skor­aði í þeim 51 mark. Þjálf­ari franska liðs­ins, Didier Deschamps, lék með Henry í lands­lið­inu á sínum tíma og hefur látið hafa eftir sér að Henry sé nú óvinur Frakk­lands. „Hann er að mæta sinni eigin þjóð. Þegar hann gerð­ist aðstoð­ar­þjálf­ari Martinez þá vissi hann að þetta gæti gerst. Þetta er furðu­leg staða og ekki auð­veld fyrir hann.“

Leik­ur­inn er sem fyrr sýndur í beinni útsend­ingu á RÚV.







Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent