Í nýrri fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2019 er gert ráð fyrir að borgarsjóður skili 3,6 milljarða afgangi árið 2019 en jákvæð niðurstaða samstæðu er áætluð 12,8 milljarðar króna eftir fjármagnsliði. Gert er ráð fyrir batnandi afkomu borgarinnar næstu fimm ár. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Í fjárhagsáætluninni til næstu fimm ára eru m.a. fyrstu áfangar Borgarlínu fjármagnaðir. Fjölga á NPA samningum innan borgarinnar sem og félagslegum íbúðum. Ásamt því er aukið fjármagn sett í að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Samkvæmt borgarstjóri ber fjárhagsáætlunin þess skýr merki að Reykjavík er í milli sókn en til stendur að borgin fjárfesti fyrir 18,8 milljarði á næsta ári.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir Reykjavíkurborg vera í miklum vexti og það sjáist greinilega á verkefnunum í fjárhagsáætlun og fjárfestingaráætlun en aukin framlög séu til skólamála og velferðarmála. Hann segir að fólki fjölgi í borginni á hverju ári sem þýðir að borgin þurfi að vaxa, byggja þarf nýjar íbúðir sem kallar á að borgin fjárfesti í innviðum eins og götum, torgum, lögnum, skólum og íþróttamannvirkjum auk þjónustu í hverfum.
Fjölgun félagsíbúða, uppbygging íþróttamannvirkja og fyrstu skref í átt að Borgarlínu
Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir umtalsverðri fjölgun félagslegra íbúða á næstu fimm ár á vegum Félagsbústaða. Auk þess mun borgin leggja talsverða fjármuni í stofnframlög til uppbyggingar íbúða til félaga sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni segir í tilkynningunni. Einnig er stefnt er að mikilli uppbyggingu í Úlfarsárdal en þar eiga rísa íþróttahús, menningarmiðstöð og sundlaug. Einnig á að byggja íþróttamannvirki í Breiðholti og Grafarvogi.
„Í fyrsta lagi erum við að tryggja fjármagn til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og til nýrra NPA samninga við fatlað fólk. Í öðru lagi erum við í mörgum grænum fjárfestingum á grundvelli aðalskipulagsins en sú stærsta á þeim vettvangi er Borgarlínan. Í þriðja lagi heldur uppbygging íþróttamannvirkja í austurhluta borgarinnar áfram og fjórða lagi höldum við áfram að efla velferðarþjónustu og auka framlög til leik- og grunnskóla í borginni. Við höldum líka gjöldum áfram í lágmarki þegar kemur að þjónustu borgarinnar þannig að það verði áfram hagstætt fyrir barnafjölskyldur, unga sem aldna að búa í Reykjavík,“ segir Dagur B. Eggertsson.
Fjárhagur batnar enn frekar á næstu árum
Samkvæmt tilkynningunni er jafnvægi í rekstri borgarinnar, bæði hjá fyrirtækjum hennar og í rekstri A-hlutans þótt ýmis blik sé á lofti í efnahagsmálum, en A-hlutinn heldur utan um hinn eiginlega rekstur fagsviða borgarinnar. Í tilkynningu til Kauphallar kemur fram að skuldahlutfall A-hluta borgarinnar er langt fyrir neðan viðmið sveitastjórnarlaga.
Rekstrartekjur A-hluta eru áætlaðir 127,7 milljarðar króna en þar af eru skatttekjur tæpir 100,8 milljarðar. Rekstrarútgjöld A-hluta eru áætluð 118,7 milljarðar, þar af laun og launatengd gjöld 69,0 milljarðar, breyting lífeyrisskuldbindinga 4,6 milljarðar og annar rekstrarkostnaður 45,1 milljarðar.
Framlegð samstæðunnar (EBITDA sem hlutfall af tekjum) er áætluð 13,7 prósent árið 2019 og hækkar í 16,5 prósent samkvæmt fimm ára áætlun.