Konum fjölgað í verkefnahóp um mótun kvikmyndastefnu

Breytingar hafa verið gerðar á verkefnahóp mennta- og menningarmálaráðuneytsins um mótun kvikmyndastefnu eftir að kynjahlutföll hópsins voru gagnrýnd. Hópurinn er nú skipaður sex konum og sex körlum.

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra
Auglýsing

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur til­kynnt hverjir skipa verk­efna­hóp á vegum ráðu­neyt­is­ins sem á að vinna að gerð kvik­mynda­stefnu stjórn­valda sem gilda á frá 2020-2030. WIFT, félag kvenna í kvik­­myndum og sjón­­varpi, sendu frá ályktun fyrr í vik­unni þar sem gagn­rýnt var að í hópnum væru aðeins tvær konur en sjö karl­ar. Félagið krafð­ist þess að helm­ingur verk­efna­hóps­ins yrði skip­aður konum og að í hópnum yrði að minnsta kosti ein kona sem starfi við kvik­­mynda­­gerð. Verk­efna­hóp­ur ráðu­neyt­is­ins er nú skip­aður sex konum og sex körlum 

Jöfn kynja­hlut­föll í hópn­um 

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að verk­efna­hópur hafi verið skip­aður á vegum mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins til þess að vinna að gerð kvik­mynda­stefnu sem gilda á frá 2020-2030. Þetta er í fyrsta sinn sem stjórn­völd móta heild­stæðu stefnu og aðgerða­á­ætlun á grunni henn­ar, sem nær yfir hlut kvik­mynda í menn­ingu þjóð­ar­inn­ar, menntun í kvik­mynda­gerð á öllum skóla­stig­um, miðlun íslensks kvik­mynda­efnis og stuðn­ing við fram­leiðslu kvik­mynda. Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni mun hóp­ur­inn vinna náið með hags­muna­að­ilum í kvik­mynda­gerð á Íslandi við mótun stefn­unnar en ráð­gert er að hóp­ur­inn skili til­lögum sínum fyrir júní­lok á þessu ári. 

Kjarn­inn fjall­að­i um álykt­un WIFT í gær. Félagið gagn­rýndi það harð­lega að ekki hafði verið fylgt jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda við skipun hóps­ins. Auk þess gagn­rýndi félagið að hvorug þeirra kvenna sem skip­aður voru fyrst í hóp­inn störf­uðu við fag­ið. Því krafð­ist félagið að í verk­efna­hóp ráðu­neyt­is­ins væri að minnsta kosti ein kona sem starf­aði við kvik­­mynda­­gerð ­og að helm­ingur hóps­ins yrði skip­aður kon­um. Nú hefur hópur ráðu­neyt­is­ins verið stækk­aður úr níu manns í tólf og nú skipa konur helm­ing hóps­ins. 

Auglýsing

Verk­efna­hóp­inn skipa nú Dagur Kári Pét­urs­son, leik­stjóri og ­for­maður Sam­taka kvik­mynda­leik­stjóra, Ása Helga Hjör­leifs­dótt­ir, ­leik­stjóri og félagi í WIFT, Áslaug María Frið­riks­dótt­ir, for­maður Kvik­mynda­ráðs, Baldur Sig­munds­son, sér­fræð­ingur í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­i, Einar Karl Birg­is­son, fram­kvæmda­stjóri, Frið­rik Þór Frið­riks­son, ­kvik­mynda­leik­stjóri og full­trúi Kvik­mynda­ráðs, ­Fríða Björk Ingv­ars­dótt­ir, rektor Lista­há­skóla Íslands , Grímar Jóns­son, fram­leið­andi, Hanna Katrín Frið­riks­son, al­þing­is­mað­ur, Jóna Páls­dótt­ir, ­sér­fræð­ingur í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytiKrist­inn Þórð­ar­son, for­maður Sam­taka íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda og full­trúi Sam­taka iðn­að­ar­ins og Mar­grét Örn­ólfs­dótt­ir, ­for­maður Félags leik­skálda og hand­rits­höf­unda

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent