Hluthafafundur í HB Granda, sem hófst klukkan 17 í dag, samþykkti með 88,85 prósent greiddra atkvæða þeirra sem fundinn sátu að kaupa allt hlutafé í sölufélögum í Japan, Hong Kong og á meginlandi Kína, sem og þjónustufélagi á Íslandi, af Útgerðarfélagi Reykjavíkur. Kaupverðið er 34,9 milljónir dala, eða tæplega 4,4 milljarðar króna. Kaupverðið var greitt með útgáfu nýs hlutafjár í HB Granda. 11,15 prósent fundarmanna greiddi atkvæði á móti tillögunni.
Frá þessu er greint í tilkynningu til Kaupahallar Íslands.
Kaupin voru umdeild enda er Útgerðarfélag Reykjavíkur stærsti eigandi HB Granda. Þá er Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, stærsti hluthafi Útgerðarfélags Reykjavíkur.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna, sem er stór hluthafi í HB Granda, lagði fyrr í dag fram breytingatillögu við fyrirliggjandi tillögu á hluthafafundi HB Granda. Tillagan fól í sér að gangi áætlanir seljanda eftir verður umsamið kaupverð greitt að fullu en ella komi til lækkunar þess. „Tillagan felur í sér að endalegt kaupverð verði tengt við afkomu næstu ára. Að öðru leyti telur sjóðurinn að sölufélögin falli vel að rekstri HB Granda og að þau séu í samræmi við yfirlýsta stefnu þess um eflingu sölu- og markaðsstarfs. Þetta er niðurstaða sjóðsins eftir greiningu á fyrirliggjandi gögnum.“
Útgerðarfélag Reykjavíkur fær því allt greitt strax í hlutafé en ef gengi hins keypta verður undir kynntri áætlun þá mun það skila hluta þess til baka. Félagið ábyrgist að hlutir verði til staðar til að efna þá leiðréttingu ef með þarf.
Ein önnur tillaga var til umfjöllunar á hluthafafundinum. Hún snérist um að breyta nafni HB Granda í Brim, en það nafn bar Útgerðarfélag Reykjavíkur áður en félagið keypti sig af krafti inn í HB Granda. Auk þess er Guðmundur Kristjánsson iðulega kenndur við Brim. Sú tillaga var samþykkt með atkvæðum 90,95 prósent þeirra hluthafa sem sátu fundinn.
Gildi sagði nei
Fjórir lífeyrissjóðir: Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), Gildi og lífeyrissjóðurinn Birta áttu samtals 40,11 prósent hlut í HB Granda fyrir viðskiptin.
A og B-deild LSR var samanlagt stærsti eigandinn í lífeyrissjóðahópnum með alls 15,15 prósent eignarhlut. A-deildin á 11,37 prósent hlut en B-deildin 3,78 prósent.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna átti 12,53 prósent hlut í HB Granda.
Gildi lífeyrissjóður, sem er einnig stór hluthafi í HB Granda, tilkynnti í fyrradag að sjóðurinn muni greiða atkvæði gegn kaupunum á hluthafafundi sem fram fer í dag. Í tilkynningu vegna þess kom meðal annars fram að viðskipti við tengda aðila yrðu að vera hafin yfir allan vafa. Þær fyrirætlanir sem fyrir liggi séu ekki trúverðugar og sjóðurinn telji að ekki hafi verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu markmiðum, mögulega með minni tilkostnaði.
Eftir viðskiptin mun hlutur Útgerðarfélags Reykjavíkur í HB Granda hækka úr 35,01 prósent í 42,31 prósent í HB Granda. Við það verður eignarhlutur Útgerðarfélags Reykjavíkur stærri en sameiginlegur eignarhluti lífeyrissjóðanna fjögurra sem eiga stóran hlut í HB Granda.