Egill Helgason, dagskrárgerðarmaður á RÚV, var tekjuhæsti fjölmiðlamaðurinn á RÚV á síðasta ári með rúmar 1,7 milljónir króna að meðaltali á mánuði, samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Þar á eftir kemur fréttastjórinn, Rakel Þorbergsdóttir, með rúmar 1,2 milljónir króna á mánuði í tekjur.
Tekjublaðið, þar sem tekjur 3.725 Íslendinga eru opinberaðar á grundvelli upplýsinga á greiddu útsvari samkvæmt álagningarskrám Ríkisskattstjóra, kom út í dag.
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, var með rúmar 5,3 milljónir króna á mánuði í laun árið 2018 og eru tekjur hans þær langhæstu á árinu meðal fjölmiðlafólks á Íslandi. Þess má geta að hluti launa Davíðs eru eftirlaun frá því hann var ráðherra og þingmaður. Eftirlaun Davíðs eru 80 prósent af launum forsætisráðherra en hann fær einnig eftirlaun vegna starfa sinna sem seðlabankastjóri eftir að hann hætti á þingi.
Á eftir Davíð kemur Haraldur Johannesen, hinn ritstjóri Morgunblaðsins og framkvæmdastjóri Árvakurs, með tæpar 3,2 milljónir á mánuði. Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, vermir þriðja sætið en hann var með rúmar 2,8 milljónir á mánuði í fyrra í mánaðartekjur.
Alls eru tuttugu starfsmenn RÚV á lista yfir fjölmiðlamenn í Tekjublaðinu í ár. Þröstur Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1, var með 1.072 þúsund krónur á mánuði í tekjur í fyrra og Baldvin Þór Bergsson, dagskrárstjóri Rásar 2, með 1.055 þúsund krónur. Fréttakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir var með 1 milljón króna að meðaltali í mánaðarlaun í fyrra og Bogi Ágústsson með 993 þúsund á mánuði.