Um 64 prósent fýla voru með plast í meltingarvegi hér á landi. Þar af voru um 13 prósent fýlanna með yfir 0,1 gramm af plasti í meltingarvegi. Þetta magn plasts er yfir mörkum sem OSPAR stefnir að og felur í sér að innan við 10 prósent fýla hafi yfir 0,1 gramm af plasti í meltingarvegi. Þetta kemur fram í niðurstöðum vöktunar Umhverfisstofnunar.
Fýlar gleypa mikið af plasti
Vöktun Umhverfisstofnunar á fýlum er hluti af staðlaðri vöktun á plastmengun innan OSPAR sem er samningur um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins og Ísland er aðili að.
Umhverfisstofnun rannsakaði fyrst plast í mögum fýla hér á landi í fyrra. Fýlar afla sér nær eingöngu fæðu á sjó og þar sem þeir eiga erfitt með að kafa þá éta þér yfirleitt það sem er næst yfirboði sjávar, sem eru oft á tíðum plast sem líkist fæðu.
Í niðurstöðum Umhverfisstofnunar um vöktun á magni plasts í meltingarvegi fýla árið 2019 kemur fram að að meðaltali voru 3,7 plastagnir í hverjum fýl. Meðalþyngd plastsins var 0,12 gramm á hvern fýl, sem er sambærilegt við niðurstöður ársins 2018.
Samanborið við fýla á öðrum hafsvæðum við Norður-Atlantshaf virðist vera minna magn af plasti í fýlum hér við land, miðað við niðurstöður rannsókna árin 2018 og 2019. Um 13 prósent fýla voru þó með magn af plasti í meltingarvegi yfir viðmiðunarmörkum OSPAR.