Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein hefur verið dæmdur í 23 ára fangelsi en hann var fundinn sekur þann 24. febrúar síðastliðinn fyrir kynferðisbrot og nauðgun. The New York Times greinir frá í dag.
Í frétt RÚV um málið kemur fram að verjendur Weinsteins hafi farið fram á að hann yrði einungis dæmdur til lágmarksrefsingar, fimm ára fangelsis. Hafi þeir sagt að skjólstæðingur þeirra væri orðinn 67 ára og heilsuveill. Þar af leiðandi yrði lengri fangelsisvist honum að aldurtila.
Ákæran var í fimm liðum. Hann var sakaður um að hafa brotið gegn tveimur konum, ákærður fyrir tvær nauðganir og önnur kynferðisbrot sem og kynferðislega misneytingu, þ.e. að hafa nýtt sér yfirburðastöðu sína til að koma fram vilja sínum. Hann var sýknaður af alvarlegustu brotunum.
Afhjúpunin hófst haustið 2017 – Metoo springur út í kjölfarið
Weinstein stofnaði kvikmyndafyrirtækið Miramax ásamt bróður sínum og framleiddi fjölda sjónvarpsþátta og stórmyndir á borð við Pulp Fiction og Shakespeare in Love.
Afhjúpunin hófst með birtingu greina í New York Times og New Yorker haustið 2017. Fram stigu konur, þekktar leikkonur meðal annars, sem greindu frá ósæmilegri hegðun hans og meintum ofbeldisbrotum.
Hver frásögnin á fætur annarri rataði í fjölmiðla. Þær voru flestar á sama veg: Weinstein var vingjarnlegur, ráðagóður og lofaði að hjálpa þeim á framabrautinni. En sú hjálp var ekki ókeypis, beint eða óbeint gaf hann það í skyn að kynferðislegir greiðar væru það gjald sem yrði að greiða. „Þú ert svo æðisleg, ég réð bara ekki við mig,“ á hann að hafa sagt við eina konuna sem varð fyrir barðinu á honum.
Hann gekk mislangt gagnvart þeim. Sumar þeirra saka hann um nauðgun og önnur kynferðisbrot. Aðrar um kynferðislega áreitni af ýmsu tagi.
Markaði tímamót
Fréttirnar mörkuðu stórkostleg tímamót; upphaf metoo-byltingarinnar. Upphafið er rakið til leikkonunnar Alyssu Milano sem kvatti konur sem orðið hefðu fyrir áreitni og ofbeldi að skrifa „me too“ á samfélagsmiðla.
Myllumerkið #metoo á þó uppruna sinn í grasrótarsamtökum árið 2006 þegar aðgerðasinninn Tarana Burke bjó það til á samfélagsmiðlinum MySpace. Hugmyndin var sú að tengja saman svartar konur sem orðið höfðu fyrir kynferðisofbeldi og að nota samkennd til að styrkja konur og efla þær.
Sigur fyrir „ófullkomin fórnarlömb“ kynferðisofbeldis
Konurnar tvær sem Harvey Weinstein var sakfelldur fyrir að nauðga og brjóta gegn með öðrum kynferðislegum hætti voru ekki „fullkomin fórnarlömb“ samkvæmt skilgreiningum. Þær áttu báðar í samskiptum við hann eftir að ofbeldið átti sér stað, jafnvel kynferðislegum. Verjendur kvikmyndaframleiðandans töldu það sýna sakleysi hans en saksóknarinn sagði það einmitt til marks um hið gagnstæða: Að valdaójafnvægi hefði gert það að verkum að konurnar teldu það sér fyrir bestu að halda áfram vinalegum samskiptum enda hefði hann hótað þeim með ýmsum hætti fengi hann ekki sínu framgengt.
Sérfræðingur í kynferðisbrotamálum sagði í vitnisburði sínum við réttarhöldin yfir Weinstein í New York að það væri mýta að konur slitu öllum samskiptum sínum í kjölfar ofbeldis. Flest kynferðisbrot ættu sér stað milli fólks sem þekktist og að það væri algengara en hitt að samskipti af einhverjum toga héldu áfram.