Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti einróma á fundi sínum 6. mars síðastliðinn að endurnýja ekki verksamning sem verið hefur í gildi á milli Háskóla Íslands og Útlendingastofnunnar. Verksamningurinn snerist um kaup Útlendingastofnunar á þjónustu Tannlæknadeildar Háskóla Íslands í málum þar sem vafi leikur á aldri einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Frá þessu er greint á vef Háskóla Íslands í dag.
Þar kemur fram að á sama tíma og samningurinn var undirritaður í mars 2019 hafi Háskóli Íslands komið ábendingum til dómsmálaráðherra þess efnis að bókun barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna frá 16. nóvember 2017 kunni að gefa tilefni til þess að endurskoða lög um útlendinga, þar á meðal ákvæði um aldursgreiningar.
Í umræddri bókun barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna segir meðal annars að ríki skuli notast við fjölþætt mat á líkamlegum og andlegum þroska barna, sem framkvæmt er af barnalæknum og öðrum sérfræðingum í þroska barna. Í sömu bókun kemur fram að ríki skuli meðal annars forðast að notast við klínískar aldursgreiningar á tönnum.
Samkvæmt tilkynningu Háskóla Íslands kom skólinn sömu sjónarmiðum á framfæri í skriflegum athugasemdum við þingmannafrumvarp um breytingu á lögum um útlendinga haustið 2019.
Útlendingastofnun brást ekki við athugasemdum
Þá hefði háskólaráð haft væntingar til þess að brugðist yrði við þessum athugasemdum með breytingum á reglum og verklagi Útlendingastofnunar í þá átt að heildstætt mat á aldri umsækjenda yrði fjölþættara og að einungis yrði notast við aldursgreiningar á tönnum í takmarkatilvikum.
„Þetta hefur ekki gengið eftir á því ári sem samningurinn hefur verið í gildi. Af þeirri ástæðu þótti háskólaráði rétt að endurnýja ekki umræddan verksamning við Útlendingastofnun,“ segir á vef HÍ.