Boðað hefur verið til framhaldsaðalfundar í Arion banka þann 14. maí næstkomandi þar sem einungis eitt mál er á dagskrá: að hætta við greiðslu arðs vegna síðasta árs.
Arion banki hagnaðist um 1,1 milljarð króna í fyrra og arðsemi eigin fjár bankans var 0,6 prósent. Til stóð að greiða tíu milljarða króna arðgreiðslu til hluthafa vegna síðasta árs. Það stóð því til að greiða út nífaldan hagnað í arð. Þau áform eru í takti við yfirlýsta stefnu bankans, sem er að öllu leyti í einkaeigu og skráður á hlutabréfamarkað, að greiða út tugi milljarða króna eigin fé hans til eigenda hans.
Frá því að upphafleg ákvörðun um þá endurgreiðslu var tekin hefur staðan í efnahagslífinu gjörbreyst.
Daginn áður, 17. mars, fór fram aðalfundur Arion banka. Þar var samþykkt að fresta arðgreiðslunni til hluthafa um tvo mánuði, eða fram í miðjan maí. Auk þess var heimild stjórnar til að kaupa allt að tíu prósent af hlutafé bankans endurnýjuð. Miðað við markaðsvirði Arion banka í dag myndi það þýða að í kringum ellefu milljarða króna greiðslu til eigenda bankans.
Þrýstingur á að sleppa arðgreiðslu
Þegar hafði verið gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir ætlaðar arðgreiðslur úr ríkisbönkunum tveimur, Íslandsbanka og Landsbankanum. Þann 20. mars, var sent bréf til Bankasýslu ríkisins, sem fer með eignarhald ríkisins í bönkunum tveimur, fyrir hönd Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Þar var farið fram á að hún myndi horfa fram hjá kröfum um ávöxtun og arðgreiðslur á árinu 2020 og að þeim skilaboðum yrði komið áfram til stjórna fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins.
Bjarni var að segja ríkisbönkunum tveimur að í ljósi þeirra aðstæðna sem komnar eru upp vegna COVID-19 heimsfaraldursins þá ættu þeir ekki að greiða út arð.
Arion banki hafði hins vegar ekki endurskoðað sín áform um að greiða út arð í maí. Í tilkynningu sem bankinn sendi til Kauphallar Íslands 27. mars síðastliðinn, vegna aðgerða sem hann hefur gripið til vegna COVID-19, kom þvert á móti fram að eiginfjár- og lausafjárstaða bankans væru mjög sterk án þess að tillit sé tekið til „fyrirsjáanlegrar arðgreiðslu að fjárhæð 10 milljarða króna“.
Þar sagði enn fremur að auk ákvörðunar um að fresta arðgreiðslu í tvo mánuði myndi bankinn „ekki fara í frekari kaup á eigin bréfum fyrr en óvissa vegna heimsfaraldursins hefur minnkað.“
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í viðtali við Fréttablaðið í síðustu viku að Seðlabankinn yrði „mjög brúnaþungur“ ef sú staða kæmi upp síðar á árinu að Arion banki myndi greiða hluthöfum sínum út arð. „Það væri algjörlega ótækt af bankanum að íhuga slíkar arðgreiðslur við þessar aðstæður, þar sem verið er að veita bönkunum tilslakanir, og hið sama gildir um kaup á eigin bréfum.“