Krár og skemmtistaðir lokaðir til 1. júní

Skemmtistaðir, krár og spilasalir verða lokaðir til 1. júní. Sömu sögu er að segja um sundlaugar og líkamsræktarstöðvar.

Laugardalslaug
Auglýsing

Fjölda­mörk sam­komu­banns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí, unn­t verður að opna fram­halds- og háskóla og ýmsir þjón­ustu­veit­endur geta á ný tek­ið á móti við­skipta­vin­um. Skemmti­stað­ir, krár og spila­salir verða hins vegar áfram lokuð til 1. júní. Þá skulu aðrir veit­inga­staðir þar sem heim­il­aðar eru á­feng­is­veit­ingar ekki hafa opið lengur en til kl. 23.00 alla daga vik­unn­ar.

Þetta er meðal þess sem leiðir af nýrri aug­lýs­ingu heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mörkun á sam­komum vegna far­sótt­ar. Rýmkun á reglum um ­tak­mark­anir á skóla­haldi og sam­komum er í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­lækn­is­. Aug­lýs­ingin tekur gildi 4. Maí og gildir til mið­nættis þann 1. júní.

Auglýsing

Frá 4. maí falla alveg niður tak­mark­anir á fjölda nem­enda í leik- og grunn­skólum og einnig fjölda­tak­mark­anir við íþrótta­iðkun og æsku­lýðs­starf barna á leik- og grunn­skóla­aldri.

Í aug­lýs­ing­unni kemur einnig fram að sund­laugar og hús­næð­i lík­ams­rækt­ar­stöðva skulu áfram vera lokuð almenn­ingi. Sund­laugar mega þó hafa opið fyrir skóla­sund og skipu­lagt íþrótta­starf.

Æfingar og keppnir skipu­lagðs íþrótta­starfs eru heim­ilar án á­horf­enda með ákveðnum tak­mörk­un­um.

Í skipu­lögðu íþrótta­starfi skulu snert­ingar vera óheim­il­ar og halda skal tveggja metra bili á milli ein­stak­linga. Notkun á sam­eig­in­leg­um ­bún­aði, einkum þeim sem snertur er með hönd­um, skal haldið í lág­marki og ber að ­sótt­hreinsa hann á milli notk­un­ar.

Óheim­ilt er að nota bún­ings­klefa, sturtu­klefa og aðra inni­að­stöðu en íþrótta­sal og sal­ern­is­að­stöðu.

Við skipu­lagt íþrótta­starf inn­an­dyra mega ekki fleiri en fjórir ein­stak­lingar æfa eða leika saman í einu rými, sem skal vera a.m.k. 800 m².

Við skipu­lagt íþrótta­starf utandyra mega ekki fleiri en sjö ein­stak­lingar æfa eða leika saman í hópi. Séu fleiri hópar við æfingar á sama ­svæði skal miða við að hver hópur hafi um 2.000 m² til umráða.

Sem fyrr segir gilda þessar tak­mark­anir ekki meðal barna á leik- og grunn­skóla­aldri.

Hér er aug­lýs­ingin í heild.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent