Tala um COVID-byltinguna í kennsluháttum

Skólastarfið í Tækniskólanum færðist allt yfir í fjarnám í samkomubanni en ákveðnir þættir námsins verða ekki unnir við stofuborðið þar sem skortir yfirleitt rennibekki, gufupressur og vélsagir, segir rektor skólans.

Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans.
Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans.
Auglýsing

Eftir helgi munu um 800 nem­endur Tækni­skól­ans mæta í skól­ann á ný til að ljúka verk­legum þáttum í námi sínu. Þetta verður þó gert í skömmtum og á tveggja vikna tíma­bili. Alls eru um 2.600 nem­endur í marg­vís­legu námi í Tækni­skól­anum og reynt verður að ljúka önn­inni í fjar­námi eins og hægt er. „En svo eru ákveðnir þættir náms­ins sem ekki verða gerðir við stofu­borð­ið,“ sagði Hildur Ingv­ars­dótt­ir, skóla­meist­ari Tækni­skól­ans á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Við stofu­borðið skorti „yf­ir­leitt renni­bekki, málm­suðu­bása, gufu­pressur og vél­sagir“.

Á mánu­dag, 4. maí, verða fyrstu skrefin í aflétt­ingu sam­komu­banns tek­in. Þá mun leik- og grunn­skóla­starf kom­ast í eðli­legt horf og fram­halds­skólar og háskólar sömu­leiðis geta opnað bygg­ingar sínar fyrir nem­endum með þeim fjölda­tak­mörk­unum og öðru sem áfram verður í gildi.

Í Tækni­skól­anum hefur verið útbúið „sautján síðna excel-skjal af skipu­lagi og 800 stunda­skrár“ til að öllum til­mælum sótt­varna­læknis verði hægt að fram­fylgja. „Við munum að sjálf­sögðu fara eftir stíf­ustu reglum um tveggja metra fjar­lægð og svo fram­veg­is.“

Auglýsing

Hildur sagði að kenn­arar og nem­endur hefðu almennt verið mjög útsjón­ar­samir og lausn­a­mið­aðir við að finna leiðir til að halda kennslu og námi áfram þrátt fyrir gjör­breyttar aðstæð­ur.

„­Stundum tölum við um COVID-­bylt­ing­una í kennslu­hátt­u­m,“ sagði Hild­ur. „Við tókum stórt stökk fram á við á svip­stund­u.“ Allir hafi lært gríð­ar­lega margt á stuttum tíma. Tæknin var oft fyrir hendi en ekki nýtt en nú varð að nota hana. „Fjar­námið hefur gengið vonum framar en ekki vand­kvæða­laust.“ Eitt það sem runnið hefur ræki­lega upp fyrir mörgum er hvað nær­veran skiptir miklu máli. Þannig séu margir fullir til­hlökk­unar að mæta aftur í skól­ann í haust.

„Ég held að við verðum með öfl­ugri fram­halds­skóla vegna þess að við komum með alls konar hluti út úr [ástand­inu] sem við getum tekið inn í áfram­hald­andi nám.“

Næstu daga og vikur munu nem­endur á öllum skóla­stigum leggja sig fram við að klára önn­ina. Hildur hvatti alla for­eldra og aðra for­ráða­menn til að hvetja nem­endur til dáða og styðja eins og þeim frekast er unn­t.  Loka­sprett­ur­inn er framund­an. Allir ættu að leggja mikið á sig við að styðja nem­endur til að ljúka önn­inni en stuðn­ingur fjöl­skyldna og sam­fé­lags­ins skiptir máli.

Hildur sagði miklu máli skipta að nem­endur hald­ist í námi og að brott­hvarf verði sem minnst. Ýmis­legt hafi verið gert til að reyna að tryggja það. Hún sagð­ist ekki vita hversu margir hafi dottið út úr námi í Tækni­skól­anum síð­ustu vikur og vonar að fjar­kennslan hafi ekki bitnað á gæðum kennsl­unn­ar.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent