Yfirkjörstjórn hefur viku til að fara yfir meðmælalista forsetaframbjóðenda og tilkynna með auglýsingu hverjir eru í framboði. Ekki er útilokað að slík auglýsing birtist fyrr.
Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans.
Forsetakosningarnar fara fram þann 27. júní næstkomandi en kosning utan kjörfundar erlendis hefst mánudaginn 25. maí. Fram kom í fréttum RÚV í gær að Guðni Th. Jóhannesson og Guðmundur Franklín Jónsson hefðu skilað inn framboði til forseta en framboðsfrestur rann út á miðnætti.
Framboð til embættis forseta Íslands teljast ekki gild fyrr en frambjóðendur hafa skilað inn tilskildum fjölda meðmælenda, 1500 til 3000 á landsvísu, en ákveðið hlutfall undirskrifta þarf að berast úr hverjum landsfjórðungi.
Guðmundur Franklín ákvað að bjóða sig fram til forseta Íslands í apríl. Í ræðu sem hann flutti í gegnum Facebook kom fram að það væri gert eftir nokkra íhugun og mikla hvatningu. Framboð hans myndi í meginþáttum snúast um að efla forsetaembættið, nýta málskotsréttinn og leggja sitt af mörkum til að berjast gegn spillingu.
Hann bauð sig líka fram til forseta árið 2016 en dró þá framboð sitt til baka nokkrum vikum síðar og lýsti yfir stuðningi við Ólaf Ragnar Grímsson, sem hætti stuttlega við að hætta við að sækjast eftir endurkjöri. Ólafur Ragnar dró svo framboð sitt til baka og var ekki í framboði þá um sumarið.
Guðni Th. safnaði hámarksfjölda meðmæla fyrir framboð sitt á nokkrum klukkutímum þann 8. maí síðastliðinn en hann óskaði eftir undirskriftum í gegnum samfélagsmiðla.