Kóralrifið mikla heldur áfram að fölna

Fölnun Kóralrifsins mikla í mars síðastliðnum er sú umfangsmesta hingað til. Febrúar síðastliðinn var heitasti mánuður á svæðinu síðan mælingar hófust.

Kóralrifið mikla hefur fölnað mikið á undanförnum árum.
Kóralrifið mikla hefur fölnað mikið á undanförnum árum.
Auglýsing

Kór­al­rifið mikla undan ströndum Queens­land fylkis í Ástr­alíu hefur aldrei glímt við jafn umfangs­mikla fölnun (e. bleaching) líkt og í mars síð­ast­liðn­um.Sam­kvæmt frétt Reuters ótt­ast vís­inda­menn að bati rifs­ins verði sífellt minni í hvert skipti sem slík fölnun á sér stað. Þetta er í þriðja sinn á síð­ustu fimm árum sem umfangs­mikil fölnun herjar á rif­ið.



Hækk­andi sjáv­ar­hiti er talin vera helsta ástæðan fyrir fölnun kór­alla. Sam­kvæmt svari á vís­inda­vefnum orsakast föln­unin af streitu­á­standi sem kemur til vegna hita­stigs­breyt­inga. Þetta streitu­á­stand „leiðir til þess að sam­býli (e. symbiot­ic) kór­als og ljóstil­líf­andi þör­unga (Zoox­ant­hella­e), sem sjá honum fyrir orku til vaxtar og við­heldur lit hans, rofn­ar. Þegar þetta sam­band rofnar og kór­all­arnir deyja hefur það gríð­ar­mikil áhrif á aðrar líf­verur því kór­al­rifin eru búsvæði og upp­eld­is­stöðvar fjölda teg­unda,“ segir í svari vís­inda­vefs­ins.



Nýlið­inn febr­úar var sá heit­asti á svæð­inu síðan mæl­ingar hófust árið 1900. Í frétt Reuters er haft eftir Terry Hug­hes, yfir­manni kór­al­rann­sókna við James Cook háskóla, að heitt hafi verið á rif­inu endi­löngu. Hvorki hafi verið sval­ara í norðri né suðri líkt og stundum tíðkast.

Auglýsing


„Svo heitt var á rif­inu að föln­unin í ár er sú umfangs­mesta hingað til­,“ ­segir Terry. Hann er nán­ast full­viss um að rifið muni ekki geta end­ur­heimt sinn fyrri styrk og hann hefur áhyggjur af því að rifið muni á end­anum logn­ast út af ef horfur í hnatt­rænni hlýnun breyt­ast ekki. 



Kór­al­rifið mikla hefur verið á heimsminja­skrá UNESCO síðan árið 1981. Rifið nær yfir svæði sem er alls 348 þús­und fer­kíló­metrar að stærð en til sam­an­burðar er flat­ar­mál Íslands 103 þús­und fer­kíló­metr­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent