Fólki verði ekki stefnt fyrir að nýta sér rétt sinn

Forsætisráðherra tjáir sig um ákvörðun mennta- og menningarmálaráðherra um að höfða mál gegn konunni sem kærunefnd jafnréttismála sagði hann hafa brotið á. Katrín vill ekki að framkvæmd laganna hafi kælingaráhrif á vilja fólks til að leita réttar síns.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

„Það er auð­vitað sér­stakt að lögin geri ráð fyrir því að eina leiðin til að fá úrskurði hnekkt sé að fara í mál við ein­stak­ling­inn sem kær­ir.“ 

Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans varð­andi ákvörðun Lilju D. Alfreðs­dótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að höfða mál gegn Haf­­dísi Helgu Ólafs­dótt­­ur, skrif­­stofu­­stjóra í for­­sæt­is­ráðu­­neyt­inu, sem kæru­­nefnd jafn­­rétt­is­­mála úrskurð­aði nýverið að Lilja hefði brotið jafn­­rétt­is­lög með því að snið­­ganga í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra í mennta- og menn­ing­­ar­­mála­ráðu­­neyt­in­u. 

„Eins og fram kom í fréttum fyrir helgi þá gera lögin ráð fyrir þess­ari heim­ild ráð­herra og kær­andi hefur sama úrræði ef málið fer ekki á hans veg,“ segir í svari for­sæt­is­ráð­herra. Katrín telur að full ástæða sé til að skoða þetta „því ekki viljum við að fram­kvæmd lag­anna með þessum hætti hafi kæl­ing­ar­á­hrif, ef svo mætti segja, á vilja fólks til að leita réttar síns. Ferlið er einmitt hugsað til að tryggja rétt fólks sem telur á sér brot­ið.“

Auglýsing

For­sæt­is­ráð­herr­ann tekur undir það með Jafn­rétt­is­stofu að til fram­tíðar litið þurfi að skoða hvort ekki megi útfæra þetta betur þannig að fólki sé ekki stefnt fyrir að nýta rétt sinn en báðir aðilar geti áfram látið reyna á úrskurð kæru­nefndar fyrir dóm­stól­um. „Það tel ég um að gera nú þegar end­ur­skoðun á jafn­rétt­islögum fer fram og ég er full­viss um að hægt er að breyta þessu fyr­ir­komu­lagi til betri veg­ar,“ segir hún. 

Katrín segir enn fremur að í þessu til­tekna máli hafi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra ákveðið að nýta sér þessa heim­ild lag­anna vegna ann­marka sem hún telur á úrskurði kæru­nefnd­ar. Lilja hafi upp­lýsti hana um þá ákvörðun en hvað varðar efn­is­at­riði máls­ins vísar Katrín á mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Van­mat Haf­­­dísi Helgu í sam­an­­burði við Pál

­For­sagan er sú að greint var frá því í byrjun mán­aðar að Lilja hefði brotið jafn­­­rétt­is­lög við skipun Páls Magn­ús­­­sonar í emb­ætti ráðu­­­neyt­is­­­stjóra í fyrra, sam­­­kvæmt úrskurði kæru­­­nefndar jafn­­­rétt­is­­­mála. Hún hefði van­­­metið Haf­­­dísi Helgu í sam­an­­burði við Pál. Hæf­is­­nefnd hafði ekki talið Haf­­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­­urra sem hæf­­astir voru taldir í starf­ið. 

Páll, sem var skip­aður í emb­ættið síðla árs í fyrra, hefur um ára­bil gegn trún­­­­að­­­­ar­­­­störfum fyrir Fram­­­­sókn­­­­ar­­­­flokk­inn en hann var vara­­­þing­­­maður Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins í tvö kjör­­­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­­­ar­­­maður Val­­­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent