700 milljónir myndi kosta að bólusetja fimmtung þjóðarinnar

Talið er að skammtur af bóluefni við COVID-19 komi til með að kosta um fimm þúsund krónur. Gera má ráð fyrir að kostnaður við að bólusetja 20 prósent þjóðarinnar verði um 700 milljónir, en að sögn Þórólfs Guðnasonar er von á bóluefni í lok árs 2021.

Fyrsti fundur Almannavarna vegna Covid-19 var haldinn 27. febrúar. Síðasti fundur í bili var í dag, 23. júlí.
Fyrsti fundur Almannavarna vegna Covid-19 var haldinn 27. febrúar. Síðasti fundur í bili var í dag, 23. júlí.
Auglýsing

„Það er nán­ast ekk­ert inn­an­lands­smit í gangi og það er mjög ánægju­legt," sagði Þórólfur Guðna­son sótt­varn­ar­læknir á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna í dag. Fund­irnir hafa verið haldnir reglu­lega frá því í lok febr­úar en eftir fund­inn í dag verður gert hlé. 

Að vanda fór Þórólfur yfir helstu tölur síð­asta sól­ar­hring­inn. Sýni voru tekin úr 2.100 manns á landa­mærum í gær en um 2.300 manns komu til lands­ins. Eitt virkt smit greind­ist á landa­mær­un­um, eng­inn var með gam­alt smit og eng­inn er að bíða eftir nið­ur­stöð­um, eftir því sem fram kom í máli Þór­ólfs á fund­in­um. 

Frá 15. júní síð­ast­liðnum hafa rúm­lega 70 þús­und far­þegar komið til­ lands­ins og um 50 þús­und sýni hafa verið tek­in. Tutt­ugu manns hafa greinst með virkt smit á þessu tíma­bili og rúm­lega 90 með gömul smit. Ell­efu ein­stak­lingar hafa greinst með inn­an­lands­smit en síð­asta smit inn­an­lands greind­ist 2. júlí. 

Auglýsing

Ekki von á bólu­efni fyrr en í lok næsta árs

Þórólfur kom sér­stak­lega inn á al­þjóð­legt sam­starf um þróun bólu­efnis sem farið er í gang. Ísland verður aðili að sam­starfs­verk­efn­in­u COVAX ­sem Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) og fleiri stofn­anir og fjöl­mörg lönd eru aðilar að. 

Kostn­aður við bólu­efni er áætl­aður að verði um 35 doll­arar á hvern skammt eða um 5.000 krón­ur. Hver ein­stak­lingur þarf tvo skammta til að bólu­setn­ing verði að fullu virk. Kostn­aður við að bólu­setja um fimmt­ung þjóð­ar­innar gæti því orðið um 700 millj­ónir króna. 

Níu bólu­efna­fram­leið­endur hafa verið valdir til sam­starfs­ins, þar af eru sex með bólu­efni í klínískum rann­sóknum nú þeg­ar. Þórólfur sagði á fund­inum að vantað hefði sam­hæf­ingu í þessa vinnu og því hafi WHO ­stofnað þennan vett­vang fyrir sam­vinnu. Með þessu á að tryggja rétt­láta dreif­ingu á bólu­efni milli landa og með því að taka þátt tryggir Ísland sér sann­gjarnan aðgang að bólu­efni þegar þar að kem­ur. 

Að sögn Þór­ólfs má gera ráð fyrir að bólu­efni verði komið á markað í lok næsta árs, í það minnsta verði ekki mikið fram­boð af bólu­efni fyrr en þá. „Það tekur langan tíma að þróa, rann­saka, ­mark­aðs­setj­a og dreifa bólu­efni um allan heim," sagði Þórólfur á fund­inum og benti á að ólík­legt væri að unnt yrði að hraða þessu ferli mikið meira.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent