Tvö innanlandssmit af Covid-19 greindust á Íslandi í gær í tveimur aðgreindum málum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Almannavörnum og embætti landlæknis.
Þar segir að báðir einstaklingar séu með einkenni Covid-19 veirunnar og komnir í einangrun.
„Í öðru málinu hafa nokkrir verið settir í 14 daga sóttkví. Í hinu málinu hafa á þriðja tug verið settir í sóttkví. Þar hafði einstaklingur tekið þátt í frjálsíþróttamóti í Hafnarfirði um síðustu helgi. Þeir sem voru útsettir fyrir smiti eru komnir í 14 daga sóttkví en smitrakningu er þó ekki lokið," segir í tilkynningunni.
Frjálsíþróttasamband Íslands er meðvitað um stöðuna og vinnur nú að því að gera viðeigandi ráðstafanir. Mótið sem um ræðir er Meistaramót Íslands 15-22 ára sem haldið var í Kaplakrika, en þar öttu yfir 200 ungmenni frá félögum af öllu landinu kappi.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis biður fólk sem sótti umrætt frjálsíþróttamót að gæta varúðar og huga að einstaklingsbundnum smitvörnum. „Leiki minnsti vafi á hvort einkenni Covid-19 veirunnar séu til staðar er sá hinn sami beðinn um að fara í sýnatöku á næstu heilsugæslustöð," segir í tilkynningunni.
Síðast kom fram innanlandssmit hér á landi 2. júlí.