Stjórn Félags fréttamanna, stéttarfélags fréttafólks á Ríkisútvarpinu, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það er harðlega gagnrýnt „að stórfyrirtækið Samherji skuli veitast að persónu Helga Seljan fréttamanns með ómaklegum hætti.“
Einnig segir í yfirlýsingunni að myndband fyrirtækisins, sem birt var í dag, virðist hafa verið unnið til þess eins að vekja efasemdir um réttmæta umfjöllun fjölmiðla um málefni fyrirtækisins.
„Það er áhyggjuefni að forsvarsmenn stórfyrirtækja, sem fjölmiðlar fjalla eðlilega um, skuli velja að reyna að gera einstaka fjölmiðlamenn tortryggilega í stað þess að svara efnislega þeim atriðum sem fram hafa komið í umfjöllun fjölmiðla um starfsemi fyrirtækisins. Það vekur jafnframt áhyggjur að fyrirtækið skuli birta slíkar ávirðingar í gervi heimildaþáttar og grafa þannig undan fjölmiðlum almennt,“ segir í yfirlýsingu félagsins, sem Alma Ómarsdóttir formaður þess undirritar.
Stjórn Félags fréttamanna segir það þekkt víða um heim að „fjársterkir aðilar beiti ýmsum aðferðum til að vekja efasemdir um fréttaflutning sem að þeim snýr“ og að það skapi þá hættu á að grafið sé undan trausti á fjölmiðlum og að fjölmiðlar veigri sér við að fjalla um einstaka aðila.
„Af því er mikil hætta búin fyrir lýðræðislegt samfélag sem byggir á því að almenningur fái að vita hvað ráðamenn í stjórnmálum og áhrifamenn í viðskiptum og atvinnulífi aðhafast. Slíkt hefur legið í loftinu síðan Kveikur, Stundin og Al Jazeera fjölluðu um Samherjaskjölin síðastliðið haust,“ segir í yfirlýsingu stjórnar félagsins.
Þar er einnig lýst yfir undrun og vonbrigðum með það að „sumir fjölmiðlar“ hafi tekið gagnrýnislaust upp ásakanir gagnvart Helga Seljan sem birtust í myndbandi Samherja í morgun.
BÍ: Blaðamenn geti sífellt átt von á að baka sér óvinsældir
Umfjöllun um málið hefur einnig birst á vef Blaðamannafélags Íslands í dag, undir fyrirsögninni „Árekstur fjársterks og fjölmiðils“.
Þar segir meðal annars að þetta sé „ekki í fyrsta sinn sem árekstrar verða milli blaðamanna og fjölmiðla á Íslandi annars vegar og fjársterkra aðila hins vegar, og væntanlega ekki það síðasta“ og að þetta sé „áminning um að blaðamenn geta sífellt átt von á að baka sér óvinsældir í gagnrýnni umfjöllun sinni um menn og málefni.“
„Sú aðferð Samherja að búa til sérstakan myndbandsþátt um málið er til marks um þá þróun sem er að verða í samskiptum fjölmiðla og (fjársterkra) fyrirtækja sem telja á sig hallað, en hefðbundinn andmælaréttur, kæruleiðir eða athugasemdir á heimasíðum virðast ekki vera taldar duga þegar máliin eru stór og umfangsmikil,“ segir í færslunni á vef BÍ.