Ríkissjóður búinn að greiða 3,9 milljarða króna í uppsagnarstyrki

Færri umsóknir hafa borist um svokallaða uppsagnarstyrki úr ríkissjóði en búist var við. Áætlaður kostnaður við styrkina var 27 milljarðar en búið er að greiða út 14 prósent af þeirri upphæð.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Þann 7. ágúst síð­ast­lið­inn höfðu alls 332 umsóknir borist um svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði, en um slíka geta fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­falli sótt um til að standa straum af 85 pró­sent af kostn­að­inum við að segja upp fólki. 

Þegar er búið að afgreiða 265 umsóknir vegna 158 rekstr­ar­að­ila og af þeim umsóknum sem afgreiddar hafa verið nemur greiddur stuðn­ingur um 3,7 millj­örðum króna vegna launa og 160 millj­ónir króna vegna orlofs. 

Þegar frum­varp um upp­sagn­ar­styrki var lagt fram um miðjan maí var gert ráð fyrir því að bein útgjöld rík­is­sjóðs vegna úrræð­is­ins yrðu 27 millj­arðar króna. Enn sem komið hefur því um 14 pró­sent af áætl­uðum kostn­aði vegna upp­sagn­ar­styrkja fallið til.

Umsóknir færri en gert var ráð fyrir

Í minn­is­blaði Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem inni­heldur yfir­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­gerða stjórn­valda vegna COVID-19, og var lagt fyrir rík­is­stjórn síð­ast­lið­inn föstu­dag, segir að umsóknir séu færri en gert hafði verið ráð fyrir á tíma­bil­inu. Umsókn­ar­frestur vegna maí, júní og júlí sé þó ekki lið­inn og gæti fjöldi umsókna því tekið breyt­ingum fram til 20. ágúst, í dag, en það er síð­asti umsókn­ar­dagur vegna þess­ara mán­aða. Upp­lýs­ingar um hverjir hafa nýtt sér úrræðið og hversu mik­inn stuðn­ing þessir aðilar hafa feng­ið, verða birtar á vef Skatts­ins eftir 20. ágúst.

Átti að kosta 27 millj­arða

Þann 28. apr­íl var til­­kynnt um að rík­­is­­stjórnin ætl­­aði að veita ákveðnum fyr­ir­tækj­um, sem hefðu orðið fyrir umfangs­­miklu tekju­tapi, eða að minnsta kosti 75 pró­sent, styrki til að eyða ráðn­­ing­­ar­­sam­­böndum þeirra við starfs­­fólk sitt. 

Auglýsing
Þegar þessi áform voru kynnt lá ekk­ert frum­varp fyr­ir, ekk­ert kostn­að­­ar­­mat hafði verið gert opin­bert og engin kynn­ing á áformunum hafði átt sér stað meðal þing­­flokka. Fyr­ir­tæki hófu að segja fólki upp í miklu magni strax í kjöl­far­ið, og áður en nýr mán­uðum hæf­ist. 

Frum­varp var svo lagt fram um miðjan maí mánuð og kostn­að­­ar­­mat kynnt sam­hliða. Það gerði ráð fyrir því að rík­­is­­sjóður greiði fyr­ir­tækjum sem upp­­­fylla sett skil­yrði alls 27 millj­­arða króna í styrki í ár til að hjálpa þeim að segja upp fólki. 

Yfir­­lýst mark­mið var að draga úr fjölda­gjald­­þrotum og tryggja rétt­indi launa­­fólks. Hlið­­ar­á­hrif eru að eign hlut­hafa er var­in. 

Icelandair áætlar að sækja 3,3 millj­arða

Ljóst er að það fyr­ir­tæki sem hefur helst notið góðs af úrræð­inu er Icelandair Group. Í hálfs­árs­upp­gjöri þess kom fram að það búist við að sækja að minnsta kosti 24 millj­­ónir banda­ríkja­dala, jafn­­virði tæp­­lega 3,3 millj­­arða íslenskra króna, í styrki til stjórn­­­valda vegna greiðslu launa á upp­­sagn­­ar­fresti starfs­­manna. 

Þar seg­ir, á blað­­síðu 24, að félög í eigu Icelandair Group vinni nú að því að sækja um styrk­ina sem stjórn­­völd kynntu, en að ennþá sé óvíst hversu margir starfs­­menn muni verða hluti af umsókn­inni, sem fari meðal ann­­ars eftir því hversu marga starfs­­menn félagið muni geta end­­ur­ráðið áður en upp­­sagn­­ar­frestur þeirra rennur út í sumar og í haust.

Icelandair reikn­aði þessi ætl­­uðu áhrif upp­­sagn­­ar­­styrkja inn sem lækk­­aðan kostnað við starfs­­manna­hald á öðrum árs­fjórð­ungi, og því er bætt við að ekki sé loku fyrir það skotið að félagið sæki um enn hærri upp­­sagn­­ar­­styrki, sem komi þá inn í reikn­ings­hald félags­­ins á þriðja árs­fjórð­ungi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent