Rio Tinto sækir um nýtt starfsleyfi fyrir álverið í Straumsvík

Sótt hefur verið um nýtt starfsleyfi fyrir álverið í Straumsvík, en núverandi starfsleyfi þess rennur út 1. nóvember. Rio Tinto, eigandi álversins, hefur sagt til skoðunar að hætta rekstri á Íslandi vegna ósamkeppnishæfs orkuverðs.

Frá álveri Rio Tinto á Íslandi í Straumsvík.
Frá álveri Rio Tinto á Íslandi í Straumsvík.
Auglýsing

Rio Tinto á Íslandi hf. hefur sótt um nýtt starfs­leyfi fyrir álverið í Straums­vík, en núver­andi starfs­leyfi þess rennur út 1. nóv­em­ber. Þetta kemur fram á vef Umhverf­is­stofn­un­ar. 

Þar segir að jafn­framt að heim­ilt sé að fram­lengja gild­is­tíma starfs­leyf­is, en þó að hámarki til eins ár, á meðan að ný umsókn um starfs­leyfi er í vinnslu. Núver­andi starfs­leyfi álvers­ins var gefið út í nóv­em­ber árið 2005.

Umhverf­is­stofnun seg­ist vera að vinna úr til­lög­unni og tekur fram að til­laga um starfs­leyfi verði aug­lýst opin­ber­lega þegar hún liggur fyrir og þá gef­ist öllum tæki­færi til að koma með athuga­semdir áður en ákvörðun um útgáfu leyf­is­ins verður tek­in.

Rio Tinto hefur sagt til skoð­unar að hætta rekstri álvers­ins á Íslandi vegna ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs sem fyr­ir­tækið fái hjá Lands­virkjun og fyrr á árinu bað stór­fyr­ir­tækið um að við­ræður færu fram um lækkað raf­orku­verð til álvers­ins, en núgild­andi raf­orkussamn­ingur var gerður árið 2010 og síð­ast end­ur­skoð­aður árið 2014.

Hörður Arn­­ar­­son, for­­stjóri Lands­­virkj­un­­ar, greindi frá því í lok febr­­úar að Lands­­virkjun hefði óskað eftir því við Rio Tinto að trún­­að­­ar­á­­kvæðum verði aflétt af raf­­­magns­­samn­ingi fyr­ir­tækj­anna þannig að hægt yrði að ræða opin­ber­­lega um meg­in­efni hans. Taldi hann þetta æski­­legt, í anda gagn­­sæis og einnig mik­il­vægt fyrir sam­­fé­lag­ið. Það hefur Rio Tinto þó ekki viljað gera.

Auglýsing

Eftir því sem liðið hefur á árið hefur aukin harka færst í mál­flutn­ing fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart Lands­virkj­un. Rio Tinto hefur hrein­lega hótað því að loka álver­inu, láti Lands­virkjun ekki af „skað­legri hátt­semi sinni“ og kvartað form­lega til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þess að félagið telur Lands­virkjun hafa yfir­burða­stöðu gagn­vart álver­inu.

Eins og rakið var í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans fyrir skemmstu er þetta ekki í fyrsta sinn sem Rio Tinto hótar því að loka því að loka álver­inu í Straums­vík­. Í kjara­deilum hafa fyr­ir­huguð verk­föll starfs­manna álvers­ins verið sögð geta valdið því að álverið leggi upp laupana og að auki var fyr­ir­huguð stækkun álvers­ins sem var hafnað í kosn­ingu sögð „for­senda þess að fyr­ir­tækið geti haldið velli.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent