Um 300 til 1.100 gætu smitast á næstu þremur vikum

Í þriðju bylgju faraldurs COVID-19, sem hófst 11. september, hafa 506 greinst með sjúkdóminn. Vísindamenn við Háskóla Íslands spá því að næstu daga haldi áfram að greinast 20-40 ný smit á dag.

Vísindamennirnir telja að enn eigi töluverður fjöldi eftir að greinast með COVID-19 í þessari bylgju faraldursins.
Vísindamennirnir telja að enn eigi töluverður fjöldi eftir að greinast með COVID-19 í þessari bylgju faraldursins.
Auglýsing

Á næstu dögum er lík­legt að dag­legur fjöldi nýgreindra smita verði á bil­inu 20-40 en þó gætu orðið hátt í 70 ný smit á dag. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri spá vís­inda­fólks frá Háskóla Íslands, emb­ættis land­læknis og Land­spít­ala um hvernig þróun far­ald­urs COVID-19 gæti orð­ið.



Spáin bendir til þess að nýgreindum smitum fari hægt fækk­andi. Eftir þrjár vikur er lík­legt að dag­legur fjöldi nýgreindra smita verði á bil­inu 10 til 30 á dag, en gætu orðið hátt í 60 nýgreind smit.

Auglýsing



Vís­inda­menn­irnir miða við að þriðja bylgja far­ald­urs­ins hafi haf­ist 11. sept­em­ber en voru þá sam­komur tak­mark­aðar við 200 manns og eru enn. Í henni hafa því 506 smit greinst. Lík­legur upp­safn­aður fjöldi smita í þess­ari bylgju verður á bil­inu 800-1.100 að mati vís­inda­mann­anna nætu þrjár vik­urnar en smitin gætu þó orðið allt að 1.650. Þetta þýðir að enn gætu 294-1.144 átt eftir að sýkj­ast á kom­andi vik­um.



Smit­stuð­ull utan sótt­kvíar í kringum 1



Í spánni er fjallað um svo­kall­aðan smit­stuðul sem segir til um hvað ein­stak­lingur sem sýk­ist muni að jafn­aði smita marga aðra. Ef smit­stuð­ull­inn er fjórir mun hver og einn að jafn­aði sýkja fjóra aðra, sem sýkja fjóra aðra og svo koll af kolli sem birt­ist í hinum marg­um­tal­aða veld­is­vísis­vexti. Ef heild­arsmit­stuð­ull­inn er hins vegar nægi­lega lágur (vel undir ein­um) mun hver og einn að jafn­aði smita færri en einn annan og far­ald­ur­inn því deyja út.



Í lík­ani vís­inda­mann­anna er gert ráð fyrir að landamæra­smit hafi smit­stuð­ul­inn núll, smit sem grein­ist í sótt­kví hafi fastan smit­stuðul í gegnum allan far­ald­ur­inn og að smit­stuð­ull­inn fyrir smit utan sótt­kvíar sé breyti­legur frá degi til dags. Breyti­legi smit­stuð­ull­inn metur smit­hrað­ann í sam­fé­lag­inu á hverjum tíma­punkti og getur því gefið mynd af áhrifum inn­gripa og sam­fé­lags­legri hegð­un.



„Okkar útreikn­ingar benda til þess að núver­andi smit­stuð­ull utan sótt­kvíar sé um einn (95% lík­inda­bil: 0,3-2,5). Þó óvissan sé tals­verð virð­ist smit­stuð­ull­inn fara lækk­andi. Þessa lækkun má lík­lega rekja til öfl­ugrar smitrakn­ingar og auk­innar vit­und­ar­vakn­ingar um per­sónu­bundnar sótt­varnir í sam­fé­lag­in­u,“ segir í sam­an­tekt vís­inda­mann­anna.



Meðal smit­stuð­ull alls tíma­bils­ins fyrir ein­stak­linga í sótt­kví er met­inn 0,6 (95% lík­inda­bil: 0,3-0,9), sem bendir til þess að sótt­kví sé mjög öflug sótt­varna­að­gerð, segir enn­fremur í sam­an­tekt­inni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent