Frank Jensen, borgarstjóri Kaupmannahafnar og varaformaður danska Sósíaldemókrataflokksins, er hættur afskiptum af stjórnmálum vegna ásakana í hans garð um kynferðislega áreitni.
Jensen tilkynnti þetta á blaðamannafundi í morgun og kemur yfirlýsing hans nokkuð á óvart, þar sem síðdegis í gær sagðist hann njóta fulls stuðnings til þess að sitja áfram, bæði sem borgarstjóri og varaformaður flokksins. Hann hafði viðurkennt óviðeigandi hegðun í garð kvenna, en sagðist sjálfur vilja taka þátt í að breyta menningunni.
Í dag sagði Jensen hins vegar, samkvæmt frétt DR, að þessi mál kæmu til með að skyggja á stjórnmálastörf hans og því hefði hann tekið ákvörðun um að hætta afskiptum af stjórnmálum.
„Ég hefði að sjálfsögðu viljað enda minn pólitíska feril á annan hátt, það segir sig sjálft,“ er haft eftir Jensen, sem hefur verið yfirborgarstjóri í Kaupmannahöfn frá árinu 2010. Áður var hann búinn að sitja á þingi fyrir Sósíaldemókrata í heil 19 ár, þar af sjö ár sem ráðherra. Hann hefur verið varaformaður flokksins frá árinu 2012, en formaðurinn er Mette Frederiksen, forsætisráðherra.
Frederiksen tjáði sig um málið fyrst í gær, eftir að Jensen hafði lýst því yfir að hann hefði stuðning baklandsins til að sitja áfram. Hún sagðist taka málinu alvarlega og að það væri ljóst að það væru vandamál hjá Sósíaldemókrataflokknum hvað þetta varðar. „Því ætlum við að breyta,“ sagði hún í skriflegu svari til Ritzau-fréttaveitunnar í gær.
Samkvæmt frétt DR var Jensen auðsýnilega óhress með þessar málalyktir og lýsir hann því yfir að hann hafi, sem fyrrverandi dómsmálaráðherra, áhyggjur af stöðu réttarríkisins, sem verði að passa upp á.
Strauk læri óumbeðinn
Á föstudaginn, 16. október, birtist í Jótlandspóstinum viðtal við Marie Gudme, sem situr í svæðisráði sósíaldemókrata á Kaupmannahafnarsvæðinu og aðra ónafngreinda konu. Gudme lýsti því í samtali við blaðið að Jensen hefði strokið á henni innanvert lærið árið 2012 og sú ónafngreinda sagði svipað atvik hafa átt sér stað árið 2017. Eftir að þetta kom upp á yfirborðið hafa margar konur til viðbótar lýst óviðeigandi hegðun af hálfu Jensen.
Áður hafa svipuð mál tengd Jensen verið til opinberrar umræðu í Danmörku, en árið 2004 og 2011 var hann sakaður um óviðeigandi háttsemi í garð yngri kvenna, í bæði skiptin í tengslum við jólaskemmtanir.
Rétt eins og kórónuveiran rís nú í annarri bylgju víða um heim má segja að önnur bylgja MeToo-byltingarinnar gangi nú yfir Danmörku, en upphaf hennar má rekja til ræðu sem leik- og sjónvarpskonan Sofie Linde hélt við árlega uppskeruhátíð danskra gínara, Zulu Comedy Gala, 6. september síðastliðinn. Þar greindi hún meðal annars frá því að hún hefði, þá átján ára gömul og í upphafi ferils síns hjá DR, orðið fyrir því að þekktur sjónvarpsmaður krafðist þess að hún veitti honum munngælur, annars myndi hann eyðileggja feril hennar.
Í kjölfarið hafa konur í fjölmiðlum og fleiri starfsstéttum stigið fram með allskyns sögur og kynferðisleg áreitni og ofbeldi verið ofarlega á baugi í danskri þjóðmálaumræðu. Á stjórnmálasviðinu urðu þau tíðindi 7. október að Morten Østergaard leiðtogi Radikale Venstre sagði af sér sem flokksformaður, eftir að hafa reynt að leyna því, bæði fyrir flokksfélögum og almenningi, að það hefði verið hann sem hefði sett hönd á læri þingkonunnar Lotte Rod árið 2010, er hún var 25 ára gamall ungliði í flokknum.Athugasemd ritstjórnar: Fyrirsögn fréttarinnar hefur verið breytt, til að endurspegla skýrar að Jensen hefur játað að hafa hagað sér með óviðeigandi hætti í garð kvenna.