Tíundi hver Ísraeli bólusettur

Milljónasti Ísraelinn varð bólusettur gegn COVID-19 í dag. Rúm ellefu prósent ísraelsku þjóðarinnar hafa nú fengið bóluefnið, en það er hæsta hlutfall bólusettra af öllum þjóðum heimsins þessa stundina.

Kórónaveiran
Auglýsing

Ísr­ael hefur náð að bólu­setja rúm ell­efu pró­sent af þjóð­inni gegn COVID-19, en millj­ón­asti ísra­elski rík­is­borg­ar­inn var bólu­settur þar í landi í morg­un. Ekki er vitað um aðra þjóð þar sem hlut­fall bólu­settra er jafn­hátt. 

Vef­mið­ill­inn Jerusalem Post greindi frá millj­ón­ustu bólu­setn­ing­unni þar í landi fyrr í dag, en sam­kvæmt henni leggur for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, Benja­min Net­anya­hu, mikla áherslu á að sem flestir lands­menn láti bólu­setja sig, hvort sem þeir séu gyð­ingar eða arabar. 

Sam­kvæmt nýj­ustu gögnum frá Our World in Data kom­ast fá lönd nálægt því hafa bólu­sett jafn­marga gegn veirunni og Ísr­a­el. Ein­ungis Kína og Banda­ríkin hafa bólu­sett fleiri af eigin rík­is­borg­ur­um, en þar hafa sam­tals 7,3 millj­ónir fengið bólu­efn­ið. Einnig hefur ein milljón Breta verið bólu­sett gegn veirunn­i. 

Auglýsing

Mun­ur­inn á Ísr­ael og öðrum löndum er þó skýr­ari ef tekið er mið af íbúa­fjölda hvers lands. Á meðan 11 pró­sent Ísra­ela hafa fengið bólu­efni gegn veirunni er hlut­fallið aðeins í tæpum tveimur pró­sentum í Bret­landi og undir einu pró­senti í Banda­ríkj­unum og Kína. Sam­svar­andi hlut­fall hér á landi nær rúmu pró­senti.

Þrátt fyrir að hlut­fall bólu­settra sé hátt í Ísr­ael gengur erf­ið­lega að draga úr útbreiðslu veirunn­ar, 14 daga nýgengi þar er nú rúm­lega tífalt hærra en hér­lend­is. Sam­kvæmt Jerusalem Post mun áhrifa bólu­setn­ing­ar­innar ekki gæta fyrr en eftir fimm vik­ur, svo lík­legt er að strang­ari sótt­varn­ar­að­gerðir verði kynntar í Ísr­ael á næstu dög­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent