Þórólfur: Ekki neitt meiriháttar áfall

Sóttvarnalæknir segist „vissulega hafa vonað“ að samkomulag myndi nást við Pfizer um vísindarannsókn á bóluefnum hér á landi. Hins vegar sé niðurstaðan um að svo verði ekki, að minnsta kosti í bili, ekki meiriháttar áfall í hans huga.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir segir að þó að nið­ur­staða fundar með for­svars­mönnum lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer í dag hafi verið sú að hér verði ekki gerð vís­inda­rann­sókn á bólu­efni þess sé ekki alveg búið að slá hug­mynd­ina út af borð­inu.



„Ég var vissu­lega að vona að þetta myndi ganga,“ sagði Þórólfur í kvöld­fréttum RÚV. Hann hafði talið að hægt væri að afla mik­illa gagna með rann­sókn hér en að það væru „ekki allir sem sjá það með sömu aug­um“.

Auglýsing



Spurður hvað þyrfti að ger­ast svo að af rann­sókn­inni yrði sagð­ist Þórólfur ekki vitað það en að best væri nú að horfa fram á veg­inn og því góða starfi sem hefur skilað okkur þeim árangri að mjög fá smit eru að greinst hér í hverri viku.



„Við höfum náð frá­bærum árangri,“ sagði Þórólf­ur. „Við þurfum að standa okkur áfram í því, halda áfram [skimun] á landa­mær­unum og halda áfram að bólu­setj­a.“



Það hafi frá upp­hafi verið grund­vallar plan yfir­valda en að mögu­legur samn­ingur við Pfizer hafi verið hlið­ar­verk­efni. „En þetta er ekki neitt meiri­háttar áfall,“ sagði hann um nið­ur­stöður fund­ar­ins í dag.



 „Við bindum miklar vonir við það að við munum fá meira af bólu­efni á öðrum og þriðja árs­fjórð­ungi heldur við höfum verið að fá und­an­far­ið. Það eru ný fyr­ir­tæki að koma inn [með bólu­efn­i].“ Talað hefur verið um að meiri­hluti lands­manna verði ekki bólu­settur fyrr en í haust en Þórólfur er ekki svo viss. „Ég held að við munum ná því fyrr.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent