Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjórann á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands, lýsir yfir hættustigi almannavarna vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem nú gengur yfir á Reykjanesi.
Hættustig almannavarna er sett á til að samhæfa aðgerðir og verklag ýmissa verklagsaðila og stofnana og hefur ekki áhrif á almenning. Hættustig er sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.
Skjálfti af stærð 5,7 mældist um 3,3 kílómetra suðsuðvestur af Keili á Reykjanesi klukkan 10:05 í morgun. Upptök skjálftanna eru á um 20 kílómetra kafla frá Grindavíkurvegi að Kleifarvatni. Fjöldi eftirskjálfta hefur fylgt og hefur sjálfvirka jarðskjálftakerfi Veðurstofu Íslands numið alls 12 skjálfta yfir 4 að stærð frá því hrinan hófst. Síðasti skjálfti mældist 4,8 að stærð, klukkan 12:37.
Skjálftarnir hafa fundist víða á Suðvesturhorninu og allt norður í Húnaþing og vestur á Ísafjörð, segir í tilkynningu frá almannavörnum. Varað er við grjóthruni á Reykjanesskaga á meðan á hrinunni stendur. Unnið er að nánari yfirferð á skjálftavirkni.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgist vel með í samvinnu við lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands.
Lögreglan á Suðurnesjum fer nú um svæðið til að kanna áhrif skjálftans. Þá hefur áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið yfir Reykjanes til að kanna aðstæður. Grjót hefur hrunið úr fjöllum á Reykjanesi og hvítir gufustrókar á jarðhitasvæðum hafa sést á svæðinu.
Veðurstofa Íslands hefur hækkað litakóða fyrir flug á Reykjanesi yfir á gult.