Barnafátækt stóraukist vegna innrásar Rússa

Efnahagslegar afleiðingar innrásar Rússa í Úkraínu hafa bitnað mest á börnum, ekki aðeins í Rússlandi og Úkraínu heldur í nágrannaríkjum bæði í Asíu og Evrópu.

Börn í Bucha í Úkraínu á fyrsta degi skólaársins nú í september.
Börn í Bucha í Úkraínu á fyrsta degi skólaársins nú í september.
Auglýsing

„Þyngstu byrðar efna­hag­skrís­unnar sem stríðið í Úkra­ínu hefur skapað lenda á börn­um.“

Þetta kemur fram í ítar­legri skýrslu UNICEF, Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem kom út í dag. Sam­kvæmt skýrsl­unni hafa fjórar millj­ónir barna í Aust­ur-­Evr­ópu og Mið-Asíu orðið fátækt að bráð vegna inn­rásar Rússa og stríðs­ins í Úkra­ínu. Það er til við­bótar við þann fjölda barna sem þegar bjó við fátækt áður en átökin hófust. Fátækum börnum í heims­hlut­anum hefur fjölgað um 19 pró­sent frá síð­asta ári að mati UNICEF.

Auglýsing

UNICEF byggir nið­ur­stöður sínar á gögnum frá 22 lönd­um. Rúss­nesk og úkra­ínsk börn hafa orðið verst úti. Mik­ill meiri­hluti barna sem hafa lent í fátækt eftir inn­rás­ina býr í Rúss­landi, eða um 2,8 millj­ón­ir. Kostn­aður við nauð­synja­vörur hefur snar­hækkað vegna stríðs­rekstrar yfir­valda og sífellt fleiri heim­ili eiga erf­ið­ara með að ná endum saman og falla undir fátækt­ar­mörk, segir í nið­ur­stöðum UNICEF.

Ekki aðeins hefur verð­bólga hækkað upp úr öllu valdi vegna stríðs­ins sjálfs heldur einnig vegna við­skipta­þving­ana sem vest­ur­veldin beita Rúss­land.

Um hálf milljón barna í Úkra­ínu hefur orðið fátæk í kjöl­far stríðs­ins. Í Rúm­eníu hefur fátækum börnum fjölgað um 110 þús­und, að mati UNICEF.

Mun valda barna­dauða

„Börn um allan þennan heims­hluta hafa orðið fyrir barð­inu á þessu hræði­lega stríð­i,“ segir Afshan Khan, svæð­is­stjóri UNICEF í Evr­ópu og Mið-Asíu. „Ef við styðjum ekki við bakið á þessum börnum og fjöl­skyldum þeirra þegar í stað þá mun aukin barna­fá­tækt alveg örugg­lega valda því að börn missa af mennt­un, tapa fram­tíð sinni og jafn­vel deyja.“

UNICEF segir að þær fjöl­skyldur sem voru hvað við­kvæm­astar fyrir verði harð­ast úti. Þegar nauð­synja­vörur hækki í verði og eng­inn sé afgang­ur­inn af tekjum heim­il­is­ins geti fólk ekki sótt sér nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu og mennt­un. Við þessar aðstæður hefur sýnt sig að ofbeldi gegn börnum og mis­notkun eykst.

UNICEF ótt­ast að með sama áfram­haldi muni 4.500 börn deyja fyrir eins árs afmæli sitt vegna efna­hags­legra afleið­inga stríðs­ins og um 117 þús­und börn hætta í námi þegar á þessu ári.

Stofn­unin leggur til ýmsar aðgerðir til að takast á við aðstæð­urn­ar, m.a. að félags­leg aðstoð til barna í við­kvæmri stöðu verði styrkt. Bæta þurfi úr þegar í stað, áður en ástandið versnar enn frek­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent