Einar Hermannsson, sem sagði af sér formennsku í SÁÁ í gær keypti vændi af konu sem glímdi við fíkn á árunum 2016 til 2018. Frá þessu er greint í umfjöllun Stundarinnar um málið en þar eru birt skjáskot af samskiptum þeirra í Messenger-forritinu.
Á þeim tíma sem Einar keypti vændi af konunni sat hann í stjórn SÁÁ, en hún er sjálf á meðal skjólstæðinga samtakanna sem hafa hjálpað henni að ná bata við fíkn sinni. Einar var formaður SÁÁ frá miðju ári 2020 og þangað til að hann sagði af sér í gær.
Í samskiptunum sem Stundin birtir kemur skýrt fram að Einar falast eftir því að hitta konuna, þar er tilgreint að það muni kosta 30 þúsund krónur og tilgreint klukkan hvað þau ætli að hittast. Eftir að um semst sendi Einar konunni skilaboð og sagðist „hlakka til“. Í öðrum skilaboðum segist Einar vera á leiðinni til konunnar, að það séu tíu mínútur í sig. Einum og hálfum tíma síðar sendir hann önnur skilaboð og segir: „Takk fyrir mig. Gaman að kynnast þér. Er að fíla þig mjög vel.“
Kaup á vændi eru ólögleg á Íslandi en sök fyrnist á tveimur árum.
Hann sagðist iðrast að hafa farið þessa leið og um leið valdið fjölskyldu sinni sársauka með hegðun sinni. „Bið ég alla þá sem málið varðar afsökunar á framferði mínu.“
Einar sagðist enn fremur ekki ætla að tjá sig frekar um málið.
Vitneskja hjá Embætti landlækni og í stjórn SÁÁ
Skömmu eftir að yfirlýsing Einars var send birti Stundin umfjöllun um málið þar sem greint var frá því að miðillinn hefði unnið að rannsókn á vændiskaupum Einars á árunum 2016-2018. Í umfjölluninni sagði meðal annars: „Stundin hefur rætt við konuna sem nú er á batavegi eftir langvarandi fíkniefnaneyslu. Hún segist hafa leiðst út í vændi til að fjármagna eiturlyfjaneyslu sína. Á því tímabili hafi Einar keypt af henni kynlífsþjónustu. Eftir að hún náði bata ætlaði hún að leita réttar síns og ræddi við sérfræðinga en þegar á hólminn var komið varð hún hrædd og kærði ekki. Nú er málið fyrnt.“
Í umfjöllun Stundarinnar sagði að Embætti landlæknis hafi verið upplýst um málið árið 2020 og að minnsta kosti einn stjórnarmaður í framkvæmdastjórn SÁÁ hafi sama ár vitað að því að Einar hefði keypt vændi af veikum fíkniefnaneytanda.
Frekari umfjöllun um málið var svo birt í morgun, meðal annars með skjáskotum af samskiptum konunnar við Einar.
Fá 1,2 milljarð króna á fjárlögum
SÁÁ, samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, eru félagasamtök sem sjá þeim sem eiga við áfengis- eða vímuefnavanda, og aðstandendum þeirra, fyrir sjúkrameðferð og endurhæfingu. Auk þess vinna samtökin að forvörnum. Um er að ræða umfangsmesta meðferðarúrræði sem er til staðar vegna áfengis- og vímuefnavanda hérlendis.
Hið opinbera fjármagnar meira en tvo þriðju hluta af starfseminni að jafnaði en það sem út af stendur er fjármagnað af samtökunum sjálfum, meðal annars með árlegri álfasölu. Samtökin fengu 1.203 milljónir króna á fjárlögum í fyrra og fjárheimild til þeirra eru 1.211 milljónir króna á ári út árið 2024 samkvæmt síðustu samþykktu fjárlögum.
Sú stofnun sem greiðir út þær fjárhæðir er Sjúkratryggingar Íslands, á grundvelli þjónustusamninga sem hið opinbera hefur gert við SÁÁ.
Krafa um endurgreiðslu á 174,5 milljónum
Gustað hefur um SÁÁ undanfarið en harðvítugar deilur hafa geisað um hvort félagasamtökunum hafi verið heimilt að fá greiðslur úr ríkissjóði fyrir þjónustu á tímum kórónveirufaraldurs sem var með öðru sniði en áður.
Sjúkratryggingar Íslands telja enga slíka heimild vera í gerðum samningum og hafa krafið samtökin um endurgreiðslu á 174,5 milljónum króna.Auk þess hefur málið verið sent til héraðssaksóknara vegna grunsemda um lögbrot. SÁÁ hefur hafnað öllum ásökunum og forsvarsmenn samtakanna sagst slegnir yfir stöðunni sem upp er komin. Í yfirlýsingu framkvæmdastjórnar samtakanna, sem send var út í síðustu viku, sagði meðal annars: „„Framkvæmdastjórn SÁÁ harmar þann farveg sem málið er komið í. Af hálfu SÁÁ hefur verið reynt að skýra hvernig verklagi var háttað, en í bréfi Ara Matthíassonar, deildarstjóra eftirlitsdeildar SÍ, sem dagsett er 29. desember 2021 og birt er á visir.is, er ekki tekið tillit til þeirra skýringa.“
Í Stundinni í dag kemur fram að sú umfjöllun hafi gert það að verkum að konan sem Einar keypti vændi af hafi ákveðið að hafa samband við miðilinn. Það geri hún vegna þess að „hún fengi ógleði í hvert sinn sem hún sæi hann í fréttum og gréti innra með sér vegna þess að hann gegndi svo ábyrgðamiklu starfi fyrir samtök sem henni þyki mjög vænt um.“