Eitt mál formlega komið á borð KKÍ

Körfuknattleikssamband Íslands hvetur þá sem telja á sér brotið að tilkynna um slík mál – öðruvísi sé ekki hægt að taka á þeim.

Körfubolti
Auglýsing

Eitt mál er varðar kyn­ferð­is­legt áreiti hefur komið form­lega inn á borð Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands (KKÍ) á síð­ustu 10 árum.

Þetta kemur fram í svari KKÍ við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Málið var „tekið föstum tök­um“, að því er fram kemur í svar­inu.

„Mál koma form­lega inn á borð til okkar með því að þol­andi eða ein­stak­lingur tengdur þolenda með beina vit­neskju til­kynnir okkur um mál. Hvort sem er í beinu sam­tali, gegnum síma eða tölvu­póst­i,“ segir í svar­inu.

Auglýsing

KKÍ hvetur þá sem telja á sér brotið að til­kynna slík mál

Sam­kvæmt KKÍ er sam­bandið með verk­ferla fyrir slík mál.

„Í stuttu máli er það þannig að ef upp kemur mál þá eru for­maður og vara­for­maður fyrstu snertiflet­ir. Málið er yfir­farið og tekin ákvörðun um hvort þurfi að til­kynna til lög­reglu sem við teljum þann far­veg sem svona alvar­leg mál eigi að fara.

Í dag höfum við einnig sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta-og æsku­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem á að fá öll mál til sín. En samt sem áður þurfum við að virða óskir þolenda ef þær eru aðrar en að kalla til lög­reglu eða sam­skipta­ráð­gjafa. Þegar búið er að ná utan um málið er stjórn KKÍ upp­lýst og ítrek­aður trún­aður sem ríkir um svona alvar­leg mál. KKÍ hvetur þá sem telja á sér brotið að til­kynna um slík mál, öðru­vísi er ekki hægt að taka á þeim,“ segir í svar­inu.

Eitt mál til HSÍ

­

­Mikil umfjöllun var í kringum Knatt­­spyrn­u­­sam­­band Íslands (KSÍ) í sumar og haust vegna ásak­ana um kyn­­ferð­is­­lega áreitni og ofbeldi á hendur lands­liðs­­manna í fót­­bolta. KSÍ stað­­festi við Kjarn­ann í sept­­em­ber að ábend­ing hefði borist sam­­band­inu snemm­sum­­­ars um yfir 10 ára gam­alt mál er varðar alvar­­legar ásak­­anir um kyn­­ferð­is­of­beldi tveggja lands­liðs­­manna gegn stúlku.

Kjarn­inn spurði Hand­knatt­­leiks­­sam­­band Íslands (HSÍ) hvort mál hefðu borist á þeirra borð á síð­ustu árum og í svari sam­bands­ins kom fram að eitt erindi er varð­aði ótil­hlýð­i­­lega hátt­­semi starfs­­manns hafi verið skoðað og sé nú lok­ið.

Sam­­kvæmt HSÍ kom eitt mál óbeint á þeirra borð fyrir þann tíma en það varð­aði sjálf­­boða­liða hjá þeim „sem varð sekur um ótil­hlýð­i­­lega fram­komu vegna starfa hans í félag­i“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent