Færa almannavarnastig vegna COVID af neyðarstigi niður á hættustig

Baráttan við COVID-19 hefur gengið vel upp á síðkastið að sögn Víðis Reynissonar en þó megi ekki ekki láta deigan síga á lokametrunum. Á upplýsingafundi almannavarna kom fram að tveir hafi greinst með indverska afbrigðið á landamærunum.

Þríeykið 29.10.2020
Auglýsing

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­vörn­um, til­kynnti á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að almanna­varna­stig vegna COVID-19 verði fært af neyð­ar­stigi niður á hættu­stig í dag. Víðir sagði að bar­áttan hefði gengið vel upp á síðkastið og að mark­miðin um að verja heil­brigð­is­kerfið og við­kvæma hópa sem og að koma í veg fyrir útbreiðslu smita og tak­marka ný smit við landa­mærin hefðu gengið vel.

„Áfram skulum við samt halda, það er stutt í mark­mið okkar varð­andi bólu­setn­ing­una og við látum ekki deigan síga á loka­metr­un­um. Það ætti eng­inn að vera hissa eða stress­aður yfir því þó eitt og eitt smit haldi áfram að grein­ast og jafn­vel utan sótt­kví­ar. Kerfið okkar hefur sýnt að vel hefur tek­ist að takast á við það og með miklu sam­eig­in­legu átaki hefur okkur tek­ist að stoppa hópsmit, til að mynda í Ölf­usi og í Skaga­firð­i,“ sagði Víðir á fund­in­um.

Tveir greinst með ind­verska afbrigðið á landa­mær­um.

Þórólfur Guðna­son, sótt­varna­lækn­ir, fór yfir tölur gær­dags­ins, venju sam­kvæmt. Í gær greindust þrír inn­an­lands og þar af voru tveir í sótt­kví en sam­tals voru tekin um 1400 sýni. Sá sem greind­ist utan sótt­kvíar teng­ist ekki fyrri smitum að sögn Þór­ólfs og var til­tölu­lega nýkom­inn til lands­ins og gæti því hafa sloppið í gegnum kerfið sem er á landa­mær­un­um. Síð­ustu vik­una hafa 26 greinst inn­an­lands og þar af sjö utan sótt­kví­ar.

Auglýsing

Á landa­mær­unum greind­ist einn með COVID-19 en þar voru tekin rúm­lega 600 sýni. Þórólfur sagði landamæra­smit hafa fækkað mikið að und­an­förnu. Lík­legt sé að þær aðgerðir sem gripið hafi verið til hafi dregið úr komu þeirra sem lík­leg­ust voru til að bera með sér smit að mati Þór­ólfs. Síð­ustu vik­una hafa fimm virk smit greinst á landa­mær­un­um, öll í fyrri skim­un.

Flest eru smitin á landa­mær­unum af hinum bresku stofni veirunnar en hingað til hafa tveir greinst með ind­verska afbrigð­ið. Þeir hinir sömu eru nú í sótt­varna­húsi að sögn Þór­ólfs en eins og staðan er núna eru um 400 manns í sótt­varna­hús­um, bæði í sótt­kví og ein­angr­un.

Ný upp­færsla á rakn­ing­arappi

Alma Möll­er, land­lækn­ir, kynnti upp­færslu á smitrakn­ing­arapp­inu. Nýja útgáfan sem kom út í gær byggir á svo­kall­aðri blu­etooth lausn en eldri útgáfa byggði á GPS tækni. Þessi blu­etooth lausn gerir rakn­ing­arteymi kleift að rekja smit þar sem tengsl milli ein­stak­linga eru ekki þekkt, til dæmis þegar smit kemur upp í fjöl­menni. „Þetta gerir blu­etooth tæknin okkur kleift án þess að gefa nokkurn afslátt á vernd per­sónu­upp­lýs­inga og örygg­i,“ sagði Alma.

Appið er á íslensku, ensku og pólsku og hvatti Alma alla til að sækja sér nýja upp­færslu. Hún sagði smá­forritið eiga eftir að vera mik­il­vægt í smitrakn­ingu nú þegar til­slak­anir eru í kort­un­um. „Við teljum að það verði afar mik­il­vægt nú á næst­unni þegar við von­andi förum að slaka meira á hér inn­an­lands. Smitrakn­ing er og verður einn af horn­steinum okkar aðgerða til að sporna við COVID-19.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent